Veiðarfæri
Veiðarfæri.
Þeir sem hafa lífsviðurværi sitt af því að nýta auðlindir hafsins eiga mest undir því að gengið sé vel um miðin. Þessir aðilar þekkja líka aðstæður best og eru því hæfastir til að ákveða hvar og með hvaða veiðarfærum veiðar eru stundaðar.
Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu er botnvarpa mikilvægasta veiðarfæri íslenskra skipa. Fiskveiðiárið 2005/2006 voru 45% aflans í þorskígildum tekin í botnvörpu, 22,1% voru tekin á línu, 11,8% í flotvörpu, 6,5% í dragnót, 6,1% í net og 4,5% í nót. Önnur veiðarfæri sem vega minna eru handfæri, rækju og humartroll.
Í meðfylgjandi töflu má sjá veiðarfæraskiptingu helstu botnfisktegunda. Allar tölur í %.
|
Helstu botnfiskteg. 05/06 |
Botnvarpa |
Dragnót | Net | Lína | Handf. | Annað |
|
Þorskur |
43,4 |
5,2 |
11,4 | 36,2 | 2,8 | 0,9 |
| Ýsa | 49,1 | 12,7 | 1,3 | 36,5 | 0 | 0,3 |
| Ufsi | 86,6 | 1,7 | 4,6 | 1,3 | 4 | 1,8 |
| Steinbítur | 42,7 | 9,4 | 0,4 | 47 | 0 | 0,4 |
| Grálúða | 88,5 | 0 | 11,1 | 0,2 | 0 | 0,3 |
| Koli | 25,3 | 71,1 | 1,1 | 0,6 | 0 | 2,0 |
Botnvarpan - Úr ræðu Björgólfs Jóhannssonar á aðalfundi LÍÚ 2006
Í meira en hundrað ár hefur verið fjallað um veiðarfæri og beitingu þeirra. Ýmsum hefur verið í nöp við botnvörpuna. Um nokkurt skeið hafa svokölluð umhverfisverndarsamtök talað fyrir því að notkun botnvörpu verði bönnuð á úthafinu og að komið verði á fót hnattrænni fiskveiðistjórnun í andstöðu við rétt strandríkja. Íslensk stjórnvöld hafa staðið mjög föst fyrir í málinu og er það vel. Þó tillögurnar láti ekki mikið yfir sér og varði núverandi veiðihagsmuni okkar litlu þá er hér um úlf í sauðargæru að ræða. Markmið margra sem nú tala fyrir banni við notkun botnvörpu á úthafinu er að banna veiðarfærið alfarið og það er hin raunverulega ógn sem stafar af málinu. Á fiskveiðíárinu 2005/2006 veiddu íslenskir útvegsmenn 365 þúsund tonn í fiskitroll, rækjutroll, humartroll og dragnót. Verðmæti þessa afla nemur rúmlega tveimur þriðju hlutum af aflaverðmæti botnlægra tegunda. Það þarf því ekki að hafa fleiri orð um alvarleika málsins. Málið snýst ekki um notkun botntrolla almennt heldur um vernd viðkvæmra vistkerfa þar sem notkun þeirra á ekki við. LÍÚ hefur haft forgöngu um að vernda slík svæði sem eru lítill hluti hafsbotnsins.
Sjá kort um togveiðihólf í íslenskri landhelgi












