Umhverfisverðlaun LÍÚ
Umhverfisverðlaun LÍÚ
Stjórn Landssambands íslenskra útvegsmanna hefur veitt fyrirtækjum innan vébanda samtakanna umhverfisverðlaun, en þau voru fyrst veitt árið 1999.
Hefur LÍÚ boðið útgerðaraðilum að láta sérfræðinga fara yfir og meta stöðu umhverfismála hjá þeim sem þess óska og hefur verið auglýst eftir umsóknum um stöðumat umhverfismála í bréfi sem sent hefur verið fyrirtækjunum og á heimasíðu LÍÚ á netinu. Þeim sem óskað hafa eftir stöðumati hafa verið send spurningaeyðublöð til að afla upplýsinga um þau atriði sem höfð eru til viðmiðunar.
Neðangreind atriði eru höfð til viðmiðunar þegar kemur að vali verðlaunahafa, en hvert þeirra atriða hefur vægi eftir því hversu mikilvægt það er talið með tilliti til umhverfisins. Var listinn og matsferlið samþykkt af stjórn LÍÚ.
Stefnumótun í umhverfismálum og almennar aðgerðir
Varnir gegn mengun
Umgengni um auðlindina
Annað sem skiptir máliEftirtaldir aðilar hafa hlotið umhverfisverðlaun LÍÚ:
Árið 1999 Grandi hf. í Reykjavík.
Árið 2000 Bergur Huginn ehf. í Vestmannaeyjum.
Árið 2001 Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi.
Árið 2002 Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað.
Árið 2003 Útgerðarfélag Akureyringa hf. á Akureyri.
Árið 2004 Eskja hf. á Eskifirði.
Árið 2005 Aðalbjörg sf. í Reykjavík.
Árið 2006 Dala-Rafn ehf. í Vestmannaeyjum
Árið 2007 Loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði
Árið 2008 Veraldarvinir












