Umhverfisstefna LÍÚ
Umhverfisstefna íslenskra útvegsmanna
Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur markað sér stefnu í umhverfismálum. Samtökin veita árlega verðlaun þeim fyrirtækjum eða samtökum sem skara framúr í umhverfismálum. Umhverfisstefna LÍÚ er í átta liðum:
- LÍÚ mun vinna að því að viðhalda hreinu og heilnæmu hafsvæði umhverfis Ísland.
- LÍÚ mun stuðla að áframhaldandi sjálfbærri nýtingu auðlinda sjávar.
- LÍÚ mun beita sér fyrir því að útbúnaður veiðarfæra leiði til góðrar nýtingar auðlinda sjávar
- LÍÚ mun beita sér fyrir eflingu hafrannsókna.
- LÍÚ mun beita sér fyrir því að leiðbeina félögum þannig að þeir séu betur í stakk búnir til að uppfylla kröfur sem fram koma í lögum og reglugerðum.
- LÍÚ mun kappkosta að upplýsa almenning um umhverfisáhrif útgerðarinnar.
- LÍÚ mun markvisst vinna að eflingu umhverfisvitundar starfsmanna útgerða.
- LÍÚ mun vinna að því að fá stjórnvöld og aðra aðila í sjávarútvegi til liðs við sig um þessa umhverfisstefnu.












