Umhverfis- og skipulagsmál
Umhverfismarkmið útvegsmanna
Stefna íslenskra útvegsmanna er að byggja á sjálfbærri nýtingu auðlindarinnar en meginstoðir hennar eru þrjár; árangursríkt stjórnkerfi, öflugar rannsóknir og stöðug þróun vísinda.
Það er skylda íslenskra útvegsmanna að vernda og verja vistkerfi sjávar og gera ekkert sem spillt getur þeirri mynd að íslenskur sjávarútvegur sé ábyrgur og vistvænn og að afurðir hans séu hreinar og ómengaðar.
Við höfum sett okkur þau umhverfismarkmið að skila auðlindum sjávar í jafngóðu eða betra ástandi til komandi kynslóða. Íslenskir útvegsmenn ætla ekki að liggja á liði sínu við eflingu allra þátta sjálfbærs sjávarútvegs á Íslandi. Til þess að markmiðin náist taka útgerðir landsins upp umhverfisstjórnun og móta umhverfisstefnu.












