Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Togveiðihólf

Togveiðihólf í fiskveiðilandhelgi Íslands

Hér að ofan eru á myndrænan hátt sýnd þau svæði og á hvaða tímum einstökum flokkum fiskiskipa er heimilt að stunda veiðar með botntrolli, skv. 5. grein laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Afmörkun svæðanna miðast við stærðir skipa og aflvísa þeirra. Með því að smella hér eða á kortið stækkar myndin.

Skipunum er skipt í þrjá flokka í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands:

1. flokkur: Fiskiskip 42 metrar og lengri. Enn fremur öll fiskiskip með aflvísa 2.500 eða hærri.
2. flokkur: Fiskiskip lengri en 29 metrar en styttri en 42 metrar með aflvísa lægri en 2.500. Enn fremur fiskiskip styttri en 29 metrar en með aflvísa 1.600 og hærri. Í þennan flokk falla einnig fiskiskip 39 metrar og styttri sem togveiðiheimildir höfðu eftir þeirri viðmiðun skv. 3. gr. laga nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, enda verði ekki um aukningu á aflvísum þeirra að ræða eftir 1. júní 1997.
3. flokkur: Fiskiskip styttri en 29 metrar, enda séu þau með lægri aflvísa en 1.600. Enn fremur fiskiskip 26 metrar og styttri sem togveiðiheimildir höfðu eftir þeirri viðmiðun skv. 3. gr. laga nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, enda verði ekki um aukningu á aflvísum þeirra að ræða eftir 1. júní 1997.

Nánari upplýsingar er að finna í lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 29/1997. Lögin má nálgast með því að smella hér.

Kort það sem hér er sýnt er frá Sjómælingum Íslands. LÍÚ ber ekki ábyrgð á ef þær upplýsingar sem gefnar eru á kortinu eru rangar, eða ef breytingar sem kunna að verða gerðar gera þær rangar, þó þær séu réttar nú.





Reglugerð og friðunarsvæði við Ísland 2008

Stækka má myndina hér að ofan með því að smella hér eða á myndina sjálfa, en hún sýnir afmörkun friðunarsvæða við Ísland 2008.





Hrygningarstopp 2007

Stækka má myndina hér að ofan með því að smella hér eða á hana sjálfa. Hún sýnir svæði sem lokuð voru skv. reglugerð um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð 2007. 

Á heimasíðu Fiskistofu eru kortin hér að ofan uppfærð reglulega

Efnahagslögsagan við Ísland

Stækka má myndina hér að ofan með því að smella hér eða á hana sjálfa, en hún sýnir efnahagslögsögu Íslands og hafsbotninn í nágrenni landsins.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta