Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Málefni smábáta

Miklar aflaheimildir verið teknar af aflamarksskipum og fluttar til smábáta 
 
Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur ítrekað mótmælt þeirri þróun sem átt hefur sér stað mörg undanfarin ár og lýtur að því að afhenda útgerðum krókabáta auknar aflaheimildir ákostnað aflamarksskipanna, bæði stórra og smárra. Undanfarin ár hafa gríðarlega miklar aflaheimildir verið teknar af aflamarksskipum og fluttar til krókabáta undir 6 tonnum. Krókabátar hafa á umliðnum árum veitt langt umfram það sem ráð var fyrir gert í þorski, ýsu og steinbít og hefur umframveiði þeirra í þessum tegundum numið tugum þúsunda tonna á fáum árum.

Á aðalfundi LÍÚ var samþykkt ályktun varðandi krókabátana þar sem fram kemur sú skoðun samtakanna að sífelld undanlátssemi stjórnvalda gagnvart þessum útgerðarflokki, með því að láta gengdarlausa ofveiði þeirra líðast, skapi hættulegt fordæmi. Það sé síst til þess falið að auka virðingu fyrir lögum, hvorki þeirra sem við sjávarútveg vinna né alls almennings. Einnig benti fundurin á það mikla óréttlæti sem felst í því að umbuna eigendum krókabáta fyrir að veiða sífellt meira en ráð var fyrir gert, á meðan útgerðum aflamarksskipanna er æ þrengri stakkur sniðinn, segir í ályktuninni.

Í ályktun aðalfundarins kom einnig fram að fundurinn hafnaði öllum röksemdum um að afhenda beri eigendum krókabáta auknar aflaheimildir vegna byggðasjónarmiða, enda væri vandséð að það, að taka veiðiheimildir frá aflamarksskipum í einu byggðarlagi og flytja þær til eigenda krókabáta í öðru byggðarlagi, væri til þess fallið að styrkja byggðarlög almennt. Í því fælist óþolandi mismunun byggðarlaga og fyrirtækja innan sömu atvinnugreinar.

Svonefndir smábátar eru ekki smábátar í hefðbundinni merkingu orðsins heldur skip sem bera 13-14 tonn af fiski í hverri veiðiferð, þótt þau séu skráð undir 6 brúttótonn að stærð. Þar er því ekki um neina smá báta að ræða og hugmyndir margra um smábáta byggjast á minningum fólks um útlit trillanna sem nú eru margar hverjar horfnar af sjónarsviðinu. Í smábátakerfinu hefur þróunin orðið sú að bátarnir verða sífellt öflugri og burðarmeiri, þrátt fyrir það að mælast ekki yfir þeim stærðarmörkum sem fyrirbyggja aðgang þeirra að því kerfi.
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tćkniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta