Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Greinasafn

Sjávarútvegsráðherra úr takti

Adolf_official„Þessar hugmyndir eru ekkert annað en grímulaus fyrningarleið. Samkvæmt þeim ætlar ríkið að taka til sín aflaheimildir af handhöfum aflahlutdeildar og leigja þær síðan. Hugmyndir af þessum toga grafa undan atvinnugreininni, veikja rekstrargrundvöll fyrirtækjanna og þar með stöðu landsbyggðarinnar," skrifar Adolf Guðmundsson, formnaður LÍÚ, í grein sem birtist í Fiskifréttum í morgun undir yfirskriftinni Sjávarútvegsráðherra úr takti.

Villtur fiskur og eldisfiskur

Sveinn HjörturFiskur veiddur úr hafinu er líklegast eina villta náttúruafurðin sem flokkast getur undir almennt fæði á mörkuðum og almenningur getur nálgast á tiltölulega auðveldlegan máta.  Hollusta fiskmetis er vel þekkt og hefur hún vafalaust hjálpað til við sölu fiskafurða og viðhaldið hagstæðu verði.

Innistæðulaus gagnrýni

Sigurður Sverrisson_2010„Samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og Úthafsveiðisamningnum ber Norðmönnum og ESB skylda til að semja við Ísland um stjórn makrílveiðanna. Með því að útiloka Ísland með ólögmætum hætti  frá samningaviðræðum um heildarstjórn makrílveiðanna í áratug hafa Noregur og Evrópusambandið verulega rýrt trúverðugleika eigin aðferða við stjórn veiðanna," segir m.a. í grein eftir upplýsinga- og kynningarfulltrúa LÍÚ í Fiskifréttum í morgun.

Skýlaus réttur Íslands til makrílveiða

 

Makríll í kös„Í stuttri aðsendri grein í Fréttablaðinu þann 20. ágúst sl. var því haldið fram að Ísland hefði ekki rétt til að veiða makríl innan íslenskrar lögsögu. Þetta er alrangt. Það er einmitt vegna þess að að makríllinn er innan íslenskrar lögsögu að réttur íslenskra skipa til veiðanna er skýlaus samkvæmt Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna," segir í grein sem Sigurður Sverrisson, upplýsinga- og kynningarfulltrúi LÍÚ, skrifaði í Fréttablaðið í morgun. Greinin fer hér á eftir í heild:

Blekking um ESB og deilistofna

Fridrik-litilÞað er blekking að aðild að ESB styrki samningsstöðu Íslands um hlutdeild í deilistofnum eins og sumir aðildarsinnar hafa haldið fram. Ýjað er að þessu í niðurlagi leiðara Fréttablaðsins þann 11. ágúst sl., þar sem fjallað er um makrílveiðar og hugsanleg staða gagnvart Noregi tekin sem dæmi.

Aflareglu í þorski þarf að endurskoða

Fridrik-litil„Frá því að Hafrannsóknastofnunin lagði til að 20% aflareglu yrði fylgt hafa komið fram sterkar vísbendingar um að ástand þorskstofnsins sé mun betra en reiknað var með.  Með nokkurri einföldun má segja að við séum nú nálægt því að vera á þeim stað sem stofnunin taldi í fyrra líklegt að við yrðum á árið 2013," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, í grein sem birtist í Fiskifréttum í morgun. Greinina má lesa hér í heild: 

Litla, gula hænan

Litla gula hænan_minnstFriðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, rifjar upp dæmisöguna um litlu, gulu hænuna í grein sem hann skrifar í Fiskifréttir í morgun. Þar vekur hann athygli á því að útgerðir hafi lagt í ómældan kostnað til að afla sjálfum sér og íslenskri þjóð rétt til veiða úr deilistofnum og stofnum sem halda sig alfarið utan lögsögu Íslands. „Þegar brauðið hefur verið bakað hafa aðilar í líki svínsins, kattarins og hundsins jafnan risið upp - og svo er enn," segir í niðurlagi greinarinnar.

Ábyrgar fiskveiðar eða vísvitandi ofveiði?

kristjanÞ„Vert er að hafa í huga að aflamark í skötusel á yfirstandandi fiskveiðiári (2009/2010) er 2500 tonn og er það magn í samræmi við ráðgjöf vísindamanna Hafrannsóknastofnunarinnar. Tilvitnað frumvarpsákvæði felur því í sér heimild til ráðherra til að leyfa veiðar á 80% meira magni skötusels en vísindamenn hafa ráðlagt. Augljóst er að ef þetta ákvæði verður að lögum þá fer það á svig við þær þjóðréttarlegu áherslur og skuldbindingar sem Íslendingar hafa haft forystu um að móta í meira en hálfa öld."

Um félagsmálaráðherra, spilafífl og apaketti

Friðrik2007„Ráðherra félagsmála velur að sjálfsögðu það orðfæri sem hann telur henta til að koma sjálfum sér og málstað sínum á framfæri við almenning. Það væri hinsvegar æskilegt að hann umgengist staðreyndir af meiri virðingu en fram kemur í þessu viðtali," skrifar Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í gær, þar sem hann svarar ummælum sem höfð voru eftir félagsmálaráðherra í blaðinu sl. laugardag. Greinin fer hér í heild:

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta