Greinasafn
Mótvægisaðgerðir
Skoðun Sveins Hjartar Hjartarsonar í Fiskifréttum 21. sept. 2007
Það kom væntanlega engum
á óvart að stjórnvöld skyldu bregðist við þeim vanda sem við er að
glíma vegna minni aflaheimilda í þorski. Flestir bjuggust við að
mótvægisaðgerðirnar yrðu af almennum toga og myndu ekki mismuna
aðilum í sjávarútveginum. Það er óhætt að segja að eftirvæntingin
eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar hafi breyst í undrun þegar
þær voru kynntar við hátíðlega athöfn á blaðamannafundi í nýlega. Í
meginatriðum snéru þær alls ekkert að sjávarútveginum.
Ágiskanir duga ekki.
Að ákæra og dæma í beinni
Grein eftir Friðrik J. Arngrimsson, framkvæmdastjóra LÍÚ, sem birtist á visir.is og í Fréttablaðinu í 10 júlí 2007
Fjömiðlamönnunum Jóhannesi Kr.
Kristjánssyni og Kristni Hrafnssyni eru það nokkur vonbrigði að
undirritaður skuli hafa gagnrýnt efnistök í Kompásþætti sem sýndur
var 6. maí s.l. og fréttaumfjöllun í kjölfar þáttarins í grein sem
birtist í Fiskifréttum. Lýsa þeir þessu yfir í blaðagrein
hinn 18. júní.
Hrygg eða lambalæri á sunnudögum
Skoðun Sveins
Hjartar Hjartarsonar í Fiskifréttum
29. júní 2007
Maður hefur það á tilfinningunni að ef illa liggur á sumum álitsgjöfum í samfélaginu beini þeir spjótum sínum að sjávarútveginum. Fjölmiðlaumræðan undanfarna áratugi um sjávarútveginn hefur oft verið óvægin og illskeytt.
Aðgát skal höfð
Þá eru alþingiskosningarnar afstaðnar og væntanlega verður búið að mynda nýja ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar þegar þessi skrif birtast.
Fátt kom á óvart í aðdraganda kosninganna. Áfram reyndi einn stjórmálaflokkur að slá sér upp með því að rakka niður íslenska fiskveiðistjórnun. Hann hafði ekki erindi sem erfiði enda sjá núorðið flestir í gegnum áróðurinn. Reyndar var aumkunarvert að fylgjast með því, að þegar allir voru að tala við alla eftir kosningarnar, datt engum í hug að ræða við þennan undarlega flokk. Nú taka væntanlega við fjögur ár þar sem fulltrúar hans halda sömu ræðurnar og þeir hafa haldið mörg þúsund sinnum áður.
Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, í Fiskifréttum 25 maí 2007
Ímynd Íslands ?
Þetta, sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann. Þessi frægu orð meistara Hallgríms Péturssonar úr Passíusálmunum um Pílatus landsstjóra komu í huga mér þegar ég las þá slæmu frétt í síðustu viku að Bakkavör hefði innkallað houmous vörur frá verslunarkeðjunum Marks og Spencer, Tesco, Somerfield, Waitrose, Co-op og Sainsbury's. Ástæðan var sú að fyrirtækið fann salmonellu í vöru sem það framleiddi fyrir Marks og Spencer.
Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ í Fiskifréttum 23. feb. 2007.
Lítið gert úr góðum málum
ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Þormóður rammi-Sæberg hf. er eitt öflugasta útgerðarfyrirtæki landsins og burðarás í atvinnulífi í Fjallabyggð. Síðastliðið sumar tilkynntu forsvarsmenn fyrirtækisins að þeir hefðu skrifað undir samning um smíði á tveimur nýjum skuttogurum frá Noregi og er kaupverðið um 5 milljarðar íslenskra króna. Hér er um að ræða eina af stærstu fjárfestingum innlends einkafyrirtækis á landsbyggðinni í nokkurn tíma.
Grein eftir Vilhjálm J. Árnason, aðstoðarframkvæmdastj. sem birtist í Morgunblaðinu 4.febrúar 2007.













