Greinasafn
Þar skilur á milli
Þó að botnvörpuveiðar á úthafinu skipti okkur Íslendinga litlu máli kemur ekki til greina að eiga nokkuð undir Grænfriðungum hvorki í þessu máli né öðrum. Markmið þeirra er að banna togveiðar alfarið hvort sem er á úthafinu eða í lögsögum ríkja. Það er hin raunverulega ógn sem stafar af málinu. Á síðasta ári veiddum við 365 þúsund tonn af fiski og skeldýrum í dregin veiðarfæri. Verðmæti þessa afla nam rúmlega tveimur þriðju hlutum af aflaverðmæti botnlægra tegunda.
Skoðun Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra LÍÚ, í Fiskifréttum 1.12.2006













