Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Greinasafn

Af læsi þingmanns – grein Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum í desember 2005

Þingræðið er einn af hornsteinum stjórnskipunar okkar. Þó í því felist að meirihluti þingsins ráði för er ekki þar með sagt að starf minnihlutans geti ekki verið mikilvægt. Það á sérstaklega við í því að veita meirihlutanum aðhald. Þingmenn stjórnarandstöðunnar beita ýmsum ráðum í því efni og til að vekja á sér athygli. Eitt þeirra úrræða sem þingmenn hafa samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis er að leita upplýsinga frá ráðherrum með því að beina fyrirspurnum til þeirra. Þetta er mikið gert, sérstaklega af þingmönnun stjórnarandstöðunnar. Sem dæmi má nefna að á haustþinginu sem nú stendur yfir hafa þingmenn beint 205 fyrirspurnum til ráðherra.  Þar af eru 183 fyrirspurnir frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar og 22 frá stjórnarþingmönnum.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta