Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Greinasafn

Nýtingarréttur á fiskistofnum - grein Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum í september 2005

Á fundi RSE Rannsóknamiðstöðvar um samfélags-  og efnahagsmál sem haldinn var fyrir stuttu hélt  bandarískur hagfræðingur Michael De Alessi fróðlegt erindi sem hann nefndi, Náttúruauðlindir, einkaeign eða ríkiseign. Í erindinu nefndi De Alessi ýmis dæmi um það hvernig vel skilgreindur eignarréttur á veiðiheimildum hefur sannað yfirburði sína sem tæki við nýtingu fiskistofna. Í erindi sínu vitnaði De Alessi meðal annars í fræg ummæli Englendingsins Arthurs Young sem fæddur var 1741 og skrifaði mikið um landbúnaðar og efnahagsmál - Afhentu manni örugg yfirráð yfir berum kletti og hann breytir honum í garð leigðu manni garð til níu ára og hann breytir honum í eyðimörk.   Það er af þessum sömu sökum sem við Íslendingar höfum blessunarlega valið þá leið að stjórna fiskveiðum okkar með kvótakerfi þar sem aflaheimildir eru framseljanlegar.  Með því hefur náðst umtalsverð hagræðing í íslenskum sjávarútvegi sem er hornsteinninn undir því að við nýtum fiskistofnana á sjálfbæran og arðbæran hátt.


Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta