Greinasafn
Verkfall skaðar alla – grein Friðriks J. Arngrímasonar í Mbl. í september 2004
Kristinn Gestsson skipstjóri skrifaði grein í Morgunblaðið þann
8. september sl. undir heitinu LÍÚ það er ræs. Það er
ánægjulegt að sjá að Kristinn trúir því ekki frekar en við, að það
þurfi að koma til verkfalls sjómanna, sem óhjákvæmilega mun einnig
hafa það í för með sér að útvegsmenn boði til verkbanns. Það er
ljóst að slíkt mun skaða bæði sjómenn og útvegsmenn. Afkoma
fyrirtækjanna mun versna og sérstaklega mun orðspor okkar á
mörkuðum úti í heimi þar sem við eigum í harðri baráttu við aðrar
fiskveiðiþjóðir bíða hnekki. Við höfum t.a.m. getað boðið stöðugt
framboð á ferskum fiski og þannig byggt upp markaðssambönd sem hafa
skilað hæsta verði. Verði rof í afhendingu hefur það afleiðingar
sem kemur niður á báðum aðilum sem erfitt verður að vinna upp.













