Greinasafn
Ólíkt hafast þeir að, grein eftir Friðrik J. Arngrímsson í Fiskifréttum 10. desember 2004
Það er kunnara en frá þurfi að segja að rækjuútgerð okkar Íslendinga hefur átt í vök að verjast um nokkurra ára skeið. Því valda ýmis ytri atvik s.s. lækkun á afurðaverði, hátt gengi íslensku krónunnar, minnkandi veiði, hækkun á olíuverði, mikil samkeppni m.a. frá Kanada og Grænlandi þar sem veiði hefur stóraukist og aukið framboð af eldisrækju. Viðvarandi tap hefur verið á útgerðinni og nú er svo komið að útgerð flestra rækjuskipa hefur verið hætt a.m.k. tímabundið. Ekki eru mörg ár síðan við áttum fríðan flota rækjufrystiskipa en nú er einungis eitt slíkt skip gert út.













