Greinasafn
Ólíkt hafast þeir að, grein eftir Friðrik J. Arngrímsson í Fiskifréttum 10. desember 2004
Það er kunnara en frá þurfi að segja að rækjuútgerð okkar Íslendinga hefur átt í vök að verjast um nokkurra ára skeið. Því valda ýmis ytri atvik s.s. lækkun á afurðaverði, hátt gengi íslensku krónunnar, minnkandi veiði, hækkun á olíuverði, mikil samkeppni m.a. frá Kanada og Grænlandi þar sem veiði hefur stóraukist og aukið framboð af eldisrækju. Viðvarandi tap hefur verið á útgerðinni og nú er svo komið að útgerð flestra rækjuskipa hefur verið hætt a.m.k. tímabundið. Ekki eru mörg ár síðan við áttum fríðan flota rækjufrystiskipa en nú er einungis eitt slíkt skip gert út.
Verkfall skaðar alla – grein Friðriks J. Arngrímasonar í Mbl. í september 2004
Kristinn Gestsson skipstjóri skrifaði grein í Morgunblaðið þann
8. september sl. undir heitinu LÍÚ það er ræs. Það er
ánægjulegt að sjá að Kristinn trúir því ekki frekar en við, að það
þurfi að koma til verkfalls sjómanna, sem óhjákvæmilega mun einnig
hafa það í för með sér að útvegsmenn boði til verkbanns. Það er
ljóst að slíkt mun skaða bæði sjómenn og útvegsmenn. Afkoma
fyrirtækjanna mun versna og sérstaklega mun orðspor okkar á
mörkuðum úti í heimi þar sem við eigum í harðri baráttu við aðrar
fiskveiðiþjóðir bíða hnekki. Við höfum t.a.m. getað boðið stöðugt
framboð á ferskum fiski og þannig byggt upp markaðssambönd sem hafa
skilað hæsta verði. Verði rof í afhendingu hefur það afleiðingar
sem kemur niður á báðum aðilum sem erfitt verður að vinna upp.
Kjarasamningar sjómanna og útvegsmanna - grein Friðriks J. Arngrímssonar í Fiskifréttum í júní 2004
Hólmgeir Jónsson framkvæmdastjóri SSÍ skrifaði grein í
Fiskifréttir þann 4. júní s.l. undir fyrirsögninni LÍÚ býður bara
kjaraskerðingu. Eins og fram kemur í greininni hefur
Ríkissáttasemjari frestað viðræðufundum aðila fram í ágúst.
Ástæða þess er sú að það mikið ber á milli aðila að ekki var talið
að frekari fundir á þessum tíma væru líklegir til að skila árangri.
Báðir aðilar voru sammála þessu mati ríkissáttasemjara.. Málin hafa
verið rædd í þaula, lagt mat á einstakar kröfur og farið yfir ýmsar
útfærslur án þess að samkomulag hafi náðst. Því miður hafa
ákveðnir aðilar í forystusveit sjómanna hafa kosið að rangfæra
hlutina og m.a. sakað samninganefnd LÍÚ um áhugaleysi um að ná
kjarasamningum. Hátíðadagur sjómanna var sérstaklega notaður í
þessu skyni og umrædd grein er eitt dæmið um þetta. Ég mun
ekki elta ólar við rógburð sem þennan þó það sé vissulega illt að
ákveðnir aðilar telji sérfræðikunnáttu sinni best varið í það að
níða skóinn af viðsemjendum sínum.













