Afstaða LÍÚ til aðildar að ESB
Aðild kemur ekki til greina vegna fiskveiðistefnu
ESB
18.apríl 2002
Afstaða stjórnar LÍÚ til aðildar Íslands að
Evrópusambandinu:
Sjávarútvegurinn er mikilvægasti útflutningsatvinnuvegur
Íslendinga. Útflutningsverðmæti sjávarafurða á síðasta ári var
122 milljarðar króna sem er um 62%% af verðmæti
vöruútflutnings landsmanna. Hagsæld hér á landi byggist að
stærstum hluta á því að fiskimiðin séu nýtt af Íslendingum af
hagsýni og á sjálfbæran hátt. Það kemur ekki til álita að aðrir en
Íslendingar sjálfir fari með forræði fiskimiðanna enda er hér um að
ræða mikilvægasta þáttinn í efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar.
Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið höfum við Íslendingar
tryggt viðskiptahagsmuni okkar gagnvart Evrópusambandinu í öllum
meginatriðum. Við stækkun ESB til austurs þarf að tryggja
viðskiptakjör Íslands til framtíðar.
Við inngöngu í Evrópusambandið yrðu Íslendingar að taka upp hina
sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB og þannig að beygja sig undir
hið yfirþjóðlega vald í Brussel varðandi ákvarðanir um
sjávarútvegsmál. Hin sameiginlega sjávarútvegsstefna ESB tekur til
allrar starfsemi sem lýtur að fiskveiðum og markaðssetningu
fiskafurða. Hún felur það í sér að ráðherraráð ESB mótar
sjávarútvegsstefnuna og tekur allar meiriháttar ákvarðanir í
sjávarútvegsmálum, þ.m.t. um leyfilegan hámarksafla. Frá stefnunni
hafa ekki fengist undanþágur sem máli skipta. Framkvæmd
sjávarútvegsstefnu ESB er í miklum ólestri. Sjávarútvegurinn er
stórlega ríkisstyrktur og flestir fiskistofnar á yfirráðasvæði
sambandsins eru ofveiddir og í hættu. Engin trygging er fyrir því
að reglan um hlutfallslegan stöðugleika haldi til frambúðar og því
gæti veiðiheimildum Íslands verið úthlutað til annarra ríkja ESB í
framtíðinni.
Með aðild Íslands að ESB gætu útlendingar eignast meirihluta í
íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Vegna mikilvægis sjávarútvegsins
fyrir Íslendinga er rétt að íslensk sjávarútvegsfyrirtæki séu að
meirihluta í eigu Íslendinga. Barátta Íslendinga fyrir fullum
yfirráðum yfir fiskimiðunum hefur verið stór hluti
sjálfstæðisbaráttunnar sem m.a. fólst í þeim miklu átökum sem áttu
sér stað í þorskastríðunum. Þeim árangri verður ekki kastað á
glæ.
Aðild Íslands að ESB hefði það í för með sér að Íslendingar færu
ekki lengur með ákvörðunarvald og samninga við önnur ríki um veiðar
úr deilistofnum, þ.e. fiskistofnum er veiðast bæði utan og innan
íslenskrar lögsögu. Þar er um að ræða loðnu, karfa, grálúðu,
úthafskarfa, norsk-íslenska síld, kolmunna og fleira. Sama gildir
um veiðar á fjarlægum miðum svo sem á rækju á Flæmingjagrunni og á
þorski, rækju og öðrum tegundum í Barentshafi. Hagsmunir Íslendinga
vegna veiða úr þessum stofnum eru mjög miklir. Útflutningsverðmæti
afurða úr þeim er um 30% af heildarútflutnings-verðmæti
sjávarafurða. Framganga ESB í viðræðum um deilistofna hefur
verið með þeim hætti að óhætt er að segja að sporin hræða.
Ástæða er til að ætla að hlutur Íslands yrði rýr ef sambandið færi
með hagsmuni okkar enda hefur það verið afstaða þess í öllum
viðræðum að hlutur Íslands sé allt of stór.
Það er útilokað að Íslendingar gangist undir hina sameiginlegu
sjávarútvegsstefnu ESB og láti af hendi stjórn og yfirráð
fiskimiðanna. Þegar af þeirri ástæðu kemur aðild að ESB ekki
til álita.
Fleira en sjávarútvegsmál mælir gegn aðild að Evrópusambandinu.
Íslenskt efnahagslíf mótast af íslenskum aðstæðum sem eru oft
gjörólíkar því sem gerist í Evrópu. Hér á landi er lögð áhersla á
að atvinna sé næg, en í mörgum löndum ESB hefur verið mikið og
viðvarandi atvinnuleysi. Sveiflur í veiði á mikilvægum fiskistofnum
og verðsveiflur á mörkuðum geta krafist sérstakra aðgerða í
efnahagsmálum þjóðarinnar.
Þeir sem aðhyllast aðild að ESB halda því fram að með henni lækki
vextir og verð á landbúnaðarafurðum. Háir vextir valda vissulega
erfiðleikum, en geta verið nauðsynlegir tímabundið til að hindra
ofþenslu. Við vaxtaákvarðanir er mikilvægt að Seðlabanki
Íslands bregðist skjótt við breyttum aðstæðum.
Með sama hætti er það sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að verja
innlendan landbúnað sem leiðir til hás verðs á
landbúnaðarvörum. Aðild að ESB er ekki skilyrði þess að
innflutningshöftum og verndarstefnu í landbúnaði verði
aflétt. Þar dugar ákvörðun íslenskra stjórnvalda.
Því hefur verið haldið fram af þeim sem vilja aðild að ESB að með
henni yrði stjórn efnahagsmála um margt betri. Innganga í ESB
leiðir ekki til þess að mikil skuldasöfnun fyrirtækja og heimila
minnki. Þvert á móti væri það varhugavert fyrir okkur
Íslendinga að leggja út í miklar breytingar og tilraunastarfsemi
með efnahagskerfi okkar við núverandi aðstæður. Ísland yrði
auk þess að greiða háar fjárhæðir í sameiginlega sjóði ESB,
fé sem er betur varið til uppbyggingar hér á landi.
--------------------------------------------
Hér má nálgast skýrslu vinnuhóps sem skipaður var árið 2003 af utanríkisráðuneytinu með aðild sjávarútvegsráðuneytisins og helstu hagsmunasamtaka í sjávarútvegi til að athuga stöðu og horfur varðandi sjávarútveg og íslenska fiskveiðihagsmuni andspænis framþróun Evrrópusambandsins: Hópurinn skilaði áfangaskýrslu í september 2004:
FISKVEIÐIAUÐLINDIN
ÍSLAND OG EVRÓPUSAMBANDIÐ












