Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Áhugavert efni

 

Áhugaverðar greinar, ræður og efni

 

Viðvörun til Íslands: Óbætanlegur skaði Skotlands af völdum  sjávarútvegsstefnu ESB. Grein frá 6. febrúar 2009 eftir Dr. James Wilkie og fleiri þar sem varað er við inngöngu Íslands í ESB með tilliti til reynslu Skota. Sækja.

Er Lettland hin nýja Argentína? Lettland sem gekk í ESB 1. janúar 2004 og festi gengi sitt við evru ári seinna eða 1. janúar 2005 er núna í miklum efnahagsvandræðum. Markmið stjórnvalda þar um evruupptöku árið 2012 fjarlægjast sífellt. AMX, 21. janúar 2009. Sækja.

Losa sig við evruna eða fara á hausinn. Breska blaðið Daily Telegraph segir írska hagfræðinginn David McWilliams hafa rofið þagnarmúr um djúpstæð vandamál á evrusvæðinu. Írar verði að segja sig frá evrunni eða fara á hausinn ella. AMX, 19. janúar 2009. Sækja.

Fyrirlestur Peter Ørebech, þjóðréttarfræðings við Háskólann í Tromsö í Noregi, um sjávarútveginn og Evrópusambandið í Þjóðminjasafninu 11. janúar 2009. Ørebech er sérfræðingur í EES rétti, sjávarútvegsmálum og reglum ESB. Sækja.

Ræða Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á fundi Heimssýnar undir yfirskriftinni Sjávarútvegurinn og ESB í Þjóðminjasafninu 11. janúar 2009. „Óbreytt fiskveiðistefna ESB gæti orðið okkar sjávarútvegi hreinn banabiti.“ Sækja.

Evrópusambandið í hnotskurn. Hver yrðu áhrif okkar ef til aðildar kæmi? Hvert er atkvæðavægi einstakra ríkja í ráðherraráðinu? Hér er stutt, aðgengileg samantekt á helstu þáttum ESB, stofnunum þess og sáttmálum með tenglum í ýmsan frekari fróðleik. Sækja.

Geta Íslendingar lært af reynslu Nýfundnalands? Árið 1948 gekk Nýfundnaland í kanadíska ríkjasambandið. Landlægt atvinnuleysi er þar viðvarandi. Grein eftir Hall Hallsson af fréttaskýringavefnum AMX frá 7. janúar 2009. Sækja.

An Icelandic Success. Umfjöllun tímaritsins The Economist frá 30. desember 2008 um íslenskan sjávarútveg, framseljanlegar aflaheimildir og hvað Evrópusambandið gæti lært af Íslendingum. Sækja þýdda grein.

Áskorun til Íslendinga. Grein Daniel Hannan, þingmanns breska Íhaldsflokksins á Evrópuþinginu, sem birtist í Morgunblaðinu 18. desember 2008. „Innganga í ESB fæli í sér algera örvæntingu, rétt eins og raunin var í tilfelli okkar Breta.” Sækja.

Sameiginlega sjávarútvegsstefnan og rústir atvinnugreinar. Grein Ruth Lea hjá Stjórnendastofnuninni í Westminster, um áhrif sjávarútvegsstefnu ESB á sjávarútveginn í Bretlandi, birt í desember 2002. Sækja.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta