Myndir frá aðalfundi 2009

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í ræðustóli.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, flytur útvegsmönnum boðskap sinn.
Menn voru oft þungt hugsi á fundinum eins og þessar myndir hér að ofan bera með sér.
Árni Bergmann Pétursson fékk Umhverfisverðlaun LÍÚ árið 2009 fyrir hugmynda- og þróunarvinnu við svokallaða rafbjögunarsíu, sem hefur reynst orkusparandi. Með honum á myndinni eru þeir Ólafur Eggertsson, sem var fundarstjóri á aðalfundinum, Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem veitti honum verðlaunin og Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ.
Fyrirlesarar á fimmtudeginum voru þeir Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor (að ofan), Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, Karl Axelsson, hæstaréttarlögmaður og Jón Sólmundsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnuninni (í þessari röð hér að neðan).
Á föstudeginum fluttu fimm fulltrúar útvegsmanna mjög áhugaverð erindi; Eggert B. Guðmundsson, forstjóri HB Granda hf., Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma hf., Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf., Sigugeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar (að neðan í þessari röð) og Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood hf.












