Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2009
Þessar tillögur voru samþykktar á aðalfundi LÍÚ, sem haldinn var í Reykjavík dagana 29. og 30. október 2009:
Hugmyndir stjórnvalda um upptöku aflaheimilda
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um upptöku aflaheimilda og hvetur stjórnvöld til að hverfa nú þegar frá þeim. Upptaka aflaheimilda er alvarleg ógn við íslenskan sjávarútveg og bein aðför að landsbyggðinni. Þessar hugmyndir hafa þegar valdið atvinnugreininni og tengdum þjónustugreinum fjárhagstjóni. Með upptökunni yrði gerður að engu sá ávinningur og sú hagræðing sem náðst hefur í sjávarútvegi undanfarin ár.
Upptaka aflaheimilda leiðir til stórfellds skaða vegna gjaldþrota fyrirtækja í sjávarútvegi. Kostnaðurinn myndi lenda á þjóðfélaginu öllu vegna taps banka, ríkissjóðs, sveitarsjóða og allra viðskiptavina sjávarútvegsins. Endurreisn íslensks efnahagslífs myndi tefjast og yrði jafnvel stefnt í tvísýnu. Síðast en ekki síst myndi þessi óheillaleið hafa alvarleg áhrif á kjör þeirra sem starfa í greininni.
Upptaka aflaheimilda myndi leiða til þess að langtímasjónarmiðum um ábyrga umgengni um fiskistofnana væri fórnað fyrir skammtímasjónarmið og upplausn í sjávarútvegi. Ísland hefur verið í forystu þeirra ríkja sem hafa lagt sig fram um ábyrgar fiskveiðar. Í þeim efnahagslegu hremmingum sem við eigum við að etja skiptir það þjóðina sköpum að áfram verði staðið vörð um ábyrga og trúverðuga fiskveiðistjórnun.
Fundurinn skorar á stjórnvöld að eyða nú þegar þeirri óvissu sem ríkir varðandi starfsumhverfi greinarinnar og hverfa frá hugmyndum sínum um upptöku aflaheimilda.
Makríll
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 leggur á það áherslu að til þess megi ekki koma að makrílveiðar verði með „ólympísku" fyrirkomulagi á næstu vertíð. Með því móti væri miklum verðmætum kastað á glæ. Afar mikilvægt er að útgerðum verði gert kleift að skipuleggja veiðarnar og gera þannig sem mest verðmæti úr veiddum afla. Til þess að svo megi verða þarf að setja aflamark á skip. Jafnframt verði tryggt að nýir aðilar geti komið að þessum veiðum og að hluti aflamarksins verði ætlaður þeim.
Þorskur
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 skorar á á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að auka þorskaflamarkið í 160 þúsund tonn eins og það var á síðasta ári. Fundurinn telur að með þessu væri engin áhætta tekin og að ekkert tilefni hafi verið til þess að minnka aflamarkið um 10 þúsund lestir við núverandi aðstæður.
Hvalveiðar
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 lýsir ánægju sinni með árangursríka, nýafstaðna hvalveiðivertíð þar sem veiddar voru 125 langreyðar og 69 hrefnur. Veiðar og vinnsla afurða skapaði 200 manns atvinnu á meðan á vertíðinni stóð. Fundurinn skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarherra að tryggja að áfram verði hægt að veiða hval við Ísland í anda ábyrgrar og skynsamlegrar nýtingar sjávarauðlinda."
Hafrannsóknir
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 skorar á stjórnvöld að falla þegar frá öllum hugmyndum um að færa Hafrannsóknastofnunina undir Umhverfisráðuneytið. Jafnframt samþykkir fundurinn að leggja til við yfirvöld að fjárveitingar til hafrannsókna verði ekki skornar niður á komandi ári eða árum.
Nauðsynlegt er að efla hafrannsóknir og þá sérstaklega rannsóknir á þorskstofninum. Efla þarf söfnun upplýsinga um fiskgöngur og fylgjast með hvað kann að ganga af þorski frá Grænlandi á Íslandsmið. Þá er einnig mikilvægt að rannsóknarsetrum á landsbyggðinni verði gert kleift að leggja rannsóknum á þessu sviði lið.
Einnig er mikilvægt að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið leyti til fleiri aðila þegar kemur að rannsóknum, hvort sem er erlendis eða til þeirra sem starfa í greininni hér á landi, bæði í útgerð og fiskvinnslu. Fyrirtækin safna miklum upplýsingum í gagnakerfum sínum og hafa möguleika á að afla frekari gagna sem nýst geta í hafrannsóknum hér við land.
Þá er bagalegt að rannsóknum á mörgum minni stofnum , en þó mikilvægum, hefur ekki verið nægjanlega sinnt hingað til og er þess ekki að vænta að úr þessu verði bætt ef fjárhagur rannsókna þrengist.
Strandveiðar
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 mótmælir því harðlega að svokallaðar strandveiðar hafi tekist vel í sumar. Þvert á móti voru þær eins misheppnaðar og efni stóðu til. Strandveiðarnar stuðluðu ekki að nýliðun, ekki að bættri aflameðferð, ekki að bættu öryggi sjómanna og stuðluðu alls ekki að sátt um fiskveiðistjórnina. Fundurinn leggur því til að strandveiðar verði ekki heimilaðar áfram. Fundurinn beinir því til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að mismunun milli útgerðaflokka sem felst í strandveiðum, línuívilun og byggðakvóta verði hætt.
Markaðir
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 telur mikilvægt að leggja rækt við alla markaði fyrir afurðir okkar, þar með talið ferskfiskmarkaði í Evrópu. Fundurinn hafnar sértækum og íþyngjandi takmörkunum sem beinast að þessum mikilvægu mörkuðum okkar. Fundurinn hafnar framkomnum hugmyndun um breytt fyrirkomulag vigtunar gámafisks.
Mál til endurskoðunarnefndar
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 ályktar að samtökin beiti sér fyrir því að þau mál sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hyggst breyta samkvæmt stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar verði lögð til hliðar eða a.m.k. sett inn í endurskoðunarnefndina svonefndu og þau rædd þar.
Veiðiréttur í kvótabundnum tegundum
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 mótmælir öllum hugmyndum um endurúthlutun á aflamarki í kvótabundnum tegundum eða að taka ákveðnar tegundir út úr kvóta sem illa hefur gengið að veiða eða ekki hefur verið arðbært tímabundið að veiða. Ef til endurúthlutunar eða niðurfellingar kvóta kemur þá er um töluvert meiri fyrningu að ræða en 5 % og það á einu fiskveiðiári. Fundurinn leggur áherslu á að fyrirhuguð aukning aflamarks í skötusel skiptist á skip eftir aflahlutdeild þeirra.
Slægingarstuðull
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 29. og 30. október 2009 beinir því til sjávarútvegsráðherra að ákvæði um slægingarstuðla verði leiðrétt og fyrirkomulag vigtunar á óslægðum fiski verði lagað að aðstæðum allra fiskvinnslufyrirtækja. Núverandi slægingarstuðull getur ekki endurspeglað þann breytileika sem er í slóghlutfalli. Ákvæði um heilvigtun á óslægðum fiski, bæði fyrir og eftir slægingu er alltof íþyngjandi fyrir lítil fiskvinnslufyrirtæki og þarf að leita einfaldari lausna.
Loðna
Í ljósi breyttrar hegðunar á loðnu og óvissu um útbreiðslu stofnsins leggur fundurinn til við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hann ákveði þegar í stað 50 þúsund tonna rannsóknakvóta fyrir komandi vetrarvertíð.












