Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2008
Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2008
Þessar tillögur voru samþykktar á aðalfundi LÍÚ, sem haldinn var í Reykjavík dagana 30. og 31. október 2008:
Hvalveiðar
Aðalfundur LÍÚ, haldinn í Reykjavík 30.-31. október 2008, leggur áherslu á að veiðum á hrefnu og langreyði í atvinnuskyni verði haldið áfram.
Stofnstærð hrefnu og langreyðar er nú talin nálægt upprunalegri stærð og sjálfbærar veiðar í samræmi við tillögur Hafrannsóknastofnunarinnar munu ekki ganga um of á þessa stofna að mati vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins. Ráðið sjálft hefur ennfremur úrskurðað að hvalveiðar Íslendinga séu fyllilega löglegar.
Makrílrannsóknir
Aðalfundur LÍÚ, haldinn í Reykjavík 30.-31. október 2008 hvetur til þess að makrílrannsóknir verði efldar til muna.
Makrílveiðar
Aðalfundur LÍÚ, haldinn í Reykjavík 30.-31. október 2008, beinir því til stjórnvalda að tryggja réttindi Íslendinga til að stunda makrílveiðar.
Greiðslumiðlun og tryggingasjóður
Aðalfundur LÍÚ, haldinn í Reykjavík 30.-31. október 2008, beinir því enn á ný til stjórnvalda að greiðslumiðlunarsjóður og tryggingasjóður verði felldir niður.
Afnám mismununar
Aðalfundur LÍÚ, haldinn í Reykjavík 30.-31. október 2008, beinir því til sjávarútvegsráðherra að tilflutningur aflaheimilda á milli útgerðaflokka verði stöðvaður. Þannig verði línuívilnun og byggðakvóti felld niður og slægingarstuðull leiðréttur.
Tillaga um ráðstöfun styrkja úr verkefnasjóði sjávarútvegsins
Aðalfundur LÍÚ, haldinn í Reykjavík 30.-31. október 2008, samþykkir að beina því til sjávarútvegsráðherra að aukinn hluti ráðstöfunarfjár verkefnasjóðs sjávarútvegsins fari til viðurkenndra rannsóknarstofa á landsbyggðinni.
Tillaga að breytingu á 20. grein samþykkta LÍÚ
Aftan við fyrstu málsgrein 20. greinar samþykkta LÍÚ bætist eftirfarandi: Varaformaður gegnir störfum formanns í forföllum hans og sama gildir láti hann af störfum.












