Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ályktanir aðalfundar LÍÚ

Samþykktar tillögur á aðalfundi LÍÚ 2007 sem haldinn var í Reykjavík 25. og 25. október 2007.

Aðalfundurinn felur stjórn samtakanna að efna til viðræðan við sjávarútvegsráðuneytið og Hafrannsóknastofnunina um endurskoðun þeirra reglna sem gilda um þriggja og fjögurra mílna línur.

 Aðalfundurinn beinir því til sjávarútvegsráðherra að skoðað verði með opnun á hólfum sem nú eru lokuð, til að auðvelda skipum veiðar á ýsu, karfa og ufsa. Eins og reynsla síðastliðins árs sýnir þá er illmögulegt að ná aflamarki í t.d.  ýsu vegna þess hve aflamark þorsks er lítið.

Aðalfundurinn beinir því til Sjávarútvegsráðherra að endalaus tilflutningur aflaheimilda á milli útgerðaflokka verði stöðvaður. Þannig verði línuívilnun og byggðakvóti felld niður og slægingarstuðull leiðréttur.

Aðalfundurinn telur að til mótvægis við skerðingu þorskaflamarks þurfi að grípa til eftirtalinna aðgerða:

*    fella strax niður veiðigjald af öllum tegundum;

*     auka fjárveitingar til hafrannsókna;

*     efla veiðarfærarannsóknir;

*     efla fiskeldisrannsóknir.

Aðalfundurinn fagnar því hversu mjög  Þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslu Íslands hefur vaxið fiskur um hrygg og hversu öflug sveitin er orðin. Fundurinn beinir því til ríkisstjórnarinnar að staðsetja þyrlu úti á landi sem mun þannig staðsett auka ennfrekar á öryggi og margfalda þjónustugetu sveitarinnar.

Aðalfundurinn leggur áherslu á að hvalveiðum í atvinnuskyni verði haldið áfram.

Aðalfundurinn ítrekar samþykkt aðalfundar ársins 2005 um að  lög um greiðslumiðlun verði afnumin.

Aðalfundurinn ítrekar samþykkt aðalfundar frá árinu 2005 um að beina  því til sjávarútvegsráðherra og Hafrannsóknastofnunarinnar að loðnurannsóknir verði auknar til mikilla muna. Rannsóknir beinist meðal annars að eftirfarandi:

  • að leggja mat á reynslu af núgildandi reglu við stjórn loðnuveiða, sem gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar;
  • að kanna magn og útbreiðslu ungloðnu og göngur hrygningarloðnu með hliðsjón af útbreiðslu þorsks;
  • að rannsaka vistfræði loðnu í ætisgöngum norður í haf að sumarlagi;
  • að kanna umfang möskvasmugs við veiðar í flotvörpu;
  • að kanna hvort veiðar í flotvörpu hafi áhrif á göngur loðnunnar og þá hvernig og í hvaða mæli.

Jafnframt verði áhrif flotvörpu við síldveiðar rannsökuð.

Aðalfundurinn beinir því til stjórnvalda að misræmi og mismunum á milli útgerðarflokka verði eytt.   Samræmdar verði kröfur um öryggi og réttindi áhafna hvort sem er í útgerð smábáta eða útgerð stærri skipa.  Sömu kröfur á að gera til allra útgerða í landinu hvað kjara- og fiskverðssamninga varðar,- útgerðir smábáta eiga ekki að vera þar undanskildar.  Einnig á að gilda jafnræði hvað varðar framsal aflaheimilda.

Aðalfundurinn leggur áherslu á að Verðlagsstofa skiptaverðs fylgi eftir að farið sé eftir fyrirliggjandi samningum um fiskverð.

 


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta