Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2006

Meðfylgjandi eru ályktanir aðalfundar LÍÚ 2006

Hvalveiðar

Aðalfundur LÍÚ haldinn 19.-20. október 2006 fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni.

Samþykkt samhljóða.

Starfsskilyrði sjávarútvegsins

Aðalfundur LÍÚ haldinn 19.-20. október 2006 skorar á sjávarútvegsráðherra  að beita sér fyrir því að minnka álögur, einfalda og samhæfa eftirlit og þjónustu sem ríkið hefur með höndum í þeim tilgangi að auka skilvirkni og lækka kostnað.

Samþykkt samhljóða.

 

Ójafnræði

Aðalfundur LÍÚ haldinn 19.-20. október 2006 skorar á sjávarútvegsráðherra  að uppræta það ójafnræði sem er innan sjávarútvegsins. Er hér meðal annars átt við línuívilnum, útflutningsálag, ranga slægingastuðla, mismunun í möguleikum aðila í aflamarks- og krókaaflamarkskerfunum til að kaupa aflamark og aflahlutdeild og óréttlæti við úthlutun byggðakvóta.  Það er grundvallaratriði að í sjávarútvegi gildi almennar leikreglur þar sem virðing er borin fyrir jafnræði eins og á öðrum sviðum þjóðlífsins.

Samþykkt samhljóða.

 

Efnahagsályktun 67. aðalfundur LÍÚ.

Aðstæður í íslensku efnahagslífi eru óvissar. Mikil framkvæmdagleði ríkir í þjóðfélaginu með tilheyrandi þenslu. Mikilvægt er að gæta aðhalds og  taka ábyrgar ákvarðanir í efnahagsmálum við slíkar aðstæður.

Hátt gengi krónunnar samhliða mikilli innlendri verðbólgu hefur skaðað starfsemi fyrirtækjanna og leitt til óviðunandi reksturs þeirra. Eigið fé fyrirtækja minnkar og þau eru verr í stakk búin að mæta versnandi aðstæðum. t.d. á erlendum mörkuðum.

Seðlabankanum hefur aldrei tekist að halda innlendri verðbólgu innan verðbólgumarkmiða sem eru 2,5%. Því hljóta þessi verðbólgumarkmið að teljast óraunhæf við þær aðstæður sem ríkt hafa. Vaxtahækkanir Seðlabankans hafa reynst vanhugsaðar og leitt til mikillar útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Þessi staða hefur leitt til óeðlilegrar styrkingar krónunnar og valdið sjávarútveginum gríðarlegum tekjumissi.

Mikilvægt er að Seðlabankinn hefji strax lækkun vaxta og stjórnvöld leiti allra leiða til þess að draga úr þeirri þenslu sem er í efnahagslífinu í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins.

Eðlilegt er að spurt sé hvort Seðlabankinn sé kominn í þá stöðu að geta ekki lækkað vexti af ótta við að erlendir aðilar innleysi bréf sín með alvarlegum afleiðingum fyrir íslenskt efnahagslíf.

Samþykkt samhljóða.

 

Samstarf atvinnurekenda í sjávarútvegi

Aðalfundur LÍÚ haldinn 19.-20. október 2006 samþykkir að samtökin beiti sér fyrir stofnun formlegs samstarfsvettvangs samtaka atvinnurekenda í sjávarútvegi sem starfa innan Samtaka atvinnulífsins.

Meginhlutverk samstarfsins felist í nánara samstarfi og samþættingu verkefna er varða kynningu og ímyndarmál sjávarútvegsins, auk umhverfismála og annarra verkefna er varða sameiginlega hagsmuni sjávarútvegsins.

Samþykkt samhljóða.

 


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta