Myndir frá aðalfundi 2005
Myndir frá aðalfundi 2005
Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ og Eiríkur Tómasson, varaformaður LÍÚ. Eiríkur var fundarstjóri á aðalfundinum.

Björgólfur Jóhannsson flytur ræðu formanns á aðalfundinum. Hægra megin á myndinni má sjá Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra.
Hlýtt á ræðu formanns LÍÚ. Á myndinni eru Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ og dr. juris Guðrún Gauksdóttir.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, flytur ávarp sitt á aðalfundi LÍÚ.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra í ræðustól. Hægra megin á myndinni má sjá Eirík Tómasson, Björgólf Jóhannsson, Friðrik J. Arngrímsson og Guðrúnu Gauksdóttur.
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, afhendir þeim Sigurði Einarssyni (t.v.) og Guðbjarti Einarssyni, umhverfisverðlaun LÍÚ 2005.

Aðalbjargarbræður með umhverfisverðlaun LÍÚ. Á myndinni eru f.v.: Stefán, Guðbjartur og Sigurður Einarssynir.
Styrktarsamningur LÍÚ við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu undirritaður. Á myndinni eru f.h.: Jón Gunnarsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Sigurgeir Guðmundsson, formaður Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, Eiríkur Tómasson, varaformaður LÍÚ, Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, dr. jur. Guðrún Gauksdóttir og fjærst situr Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra.
Dr. juris Guðrún Gauksdóttir, dósent við Háskólann í Reykjavík og formaður Rannsóknastofnunar í auðlindarétti, flytur erindi sitt á aðalfundinum. Erindið bar yfirskriftina: Eru aflaheimildir “eign” í skilningi eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrárinnar? 
Sigurjón Arason, sérfræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, fjallaði í ávarpi sínu um aukna nýtingu með betri kælingu og meðferð afla.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, fjallaði í ræðu sinni um samspil þorsks og loðnu.
Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur í greiningardeild Landsbanka Íslands flutti erindi um sjávarútveginn og gengi krónunnar, en það bar yfirskriftina: Flotgengi í fjögur ár - höfum við gengið til góðs?
Erindi sitt um sjávarútveginn og gengi íslensku krónunnar kallaði Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbanka Íslands: Krónan í hæstu hæðum, hvað er til ráða? 
Unnar Már Pétursson, fjármálastjóri Þormóðs ramma – Sæbergs hf. fjallaði um áhrif hás gengis krónunnar á sjávarútvegsfyrirtækin. Erindi sitt kallaði Unnar Már: Hágengið er dauðans alvara.
Björn Rúnar Guðmundsson hagfræðingur í Landsbanka Íslands flytur erindi sitt. Næstur honum situr Eiríkur Tómasson, þá koma Friðrik J. Arngrímsson, Sigurjón Þ. Árnason, Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, sem tók þátt í pallborðsumræðunum, Unnar Már Pétursson, Ari Edwald framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulíufsins sem stjórnaði pallborðsumræðum og Björgólfur Jóhannsson.
Eftir að frummælendur höfðu lokið erindum sínum tóku við pallborðsumræður undir stjórn Ara Edwald.
Aðalfundarfulltrúar hlýddu með athygli á erindin sem flutt voru á fundinum. Næstur á myndinni er Gísli Jón Hermannsson útgerðarmaður í Ögurvík, við hlið hans situr Þórhallur Helgason og næstur kemur Árni Vilhjálmsson, stjórnarformaður HB Granda.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, situr hér með þeim Björgólfi Jóhannssyni og Friðriki J. Arngrímssyni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, flytur ræðu sína á aðalfundinum.
Bjarni Aðalgeirsson, formaður allsherjarnefndar aðalfundarins, kynnir tillögur sem lagðar voru fyrir fundinn.
Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæbergs hf., flytur ræðu.
Gunnar Jóhannsson útgerðarmaður.
Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri Guðmundar Runólfssonar ehf., í ræðustól. 
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja hf, flytur ræðu á aðalfundinum.
Freysteinn Bjarnason í ræðustól.
Pétur H. Pálsson framkvæmdastjóri Vísis hf. 
Leó Óskarsson útgerðarmaður.












