Ályktanir aðalfundar
Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2005
Efnahagsályktun 66. aðalfundar LÍÚ
Fyrirtæki í sjávarútvegi glíma nú við mikla og vaxandi erfiðleika í rekstri sínum vegna þess að gengi krónunnar er allt of hátt. Þessi þróun leiðir til þess að afkoma fyrirtækja í sjávarútvegi er óviðunandi, fyrirtækin í taprekstri og eigið fé þeirra tapast verði haldið áfram á sömu braut. Á sama tíma hefur verðlag aðfanga farið ört hækkandi, sérstaklega olíu sem er stærsti kostnaðarliður útgerðarinnar fyrir utan laun.
Við þessar aðstæður verða stjórnvöld að varða stefnu aðhalds og festu í stjórn efnahagsmála í samhentu átaki með Seðlabankanum.
Mikilvægt er að viðurkenna að undirliggjandi verðbólga stafar að mestu leyti af heimatilbúnum ástæðum. Seðlabankinn mun ekki ná verðbólgumarkmiðum í tæka tíð með hækkun stýrivaxta. Fyrirtæki heltast úr lestinni, fólk missir vinnuna og samfélagið allt tapar þegar upp er staðið. Undirliggjandi verðbólgu verður einfaldlega að tappa af.
Mikilvægt er að ákvörðun verði tekin nú þegar um aukin kaup á gjaldeyri og nýta til þess meðal annars söluandvirði Símans. Einnig er brýnt að breyta strax reglum Íbúðalánasjóðs varðandi vexti og lánshlutföll. Bankarnir eru þegar farnir að lækka þessi hlutföll og er það vel. Þessar aðgerðir munu draga úr þenslunni.
Samþykkt samhljóða
Ályktun um greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 27. og 28. október 2005 samþykkir að beina því til stjórnvalda að lög nr. 24/1986 um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins og lög nr. 17/1976 um greiðslu vátryggingariðgjalda fiskiskipa verði felld úr gildi.
Samþykkt með öllum atkvæðum gegn einu
Ályktun um hvalveiðar
Aðalfundur LÍÚ haldinn 27.-28. október 2005 hvetur stjórnvöld til að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni svo fljótt sem verða má og ekki síðar en vorið 2006, í samræmi við fyrirvara Íslands við núllkvóta við inngöngu í Alþjóðahvalveiðiráðið.
Íslendingum ber að gæta vel að rétti sínum til nýtingar hvalastofna við landið. Grundvallaratriði er að landsmönnum verði hvorki meinað að nýta auðlindir hafsins á sjálfbæran hátt, né að viðhalda jafnvægi milli tegunda. Hvalastofnar við Íslandsstrendur eru ekki í útrýmingarhættu heldur í stöðugum vexti. Vísindalegra gagna verði safnað samhliða veiðum í atvinnuskyni.
Samþykkt samhljóðaÁlyktun um loðnurannsóknir
Aðalfundur LÍÚ haldinn 27.-28. október 2005 beinir því til sjávarútvegsráðherra og Hafrannsóknastofnunarinnar að loðnurannsóknir verði auknar til mikilla muna án tafar.
Mikilvægi rannsókna á loðnu stafar einkum af því hversu stór þáttur hennar er í fæðu botnfiska. Rannsóknir á loðnu eru sérstaklega brýnar nú vegna þess hversu mjög ástand sjávar og útbreiðsla loðnunnar hafa breyst á undanförnum árum.
Rannsóknir beinist meðal annars að eftirfarandi:
- að leggja mat á reynslu af núgildandi reglu við stjórn loðnuveiða, sem gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar;
- að kanna magn og útbreiðslu ungloðnu og göngur hrygningarloðnu með hliðsjón af útbreiðslu þorsks;
- að rannsaka vistfræði loðnu í ætisgöngum norður í haf að sumarlagi;
- að kanna umfang möskvasmugs við veiðar í flotvörpu;
- að kanna hvort veiðar í flotvörpu hafi áhrif á göngur loðnunnar og þá hvernig og í hvaða mæli.
Samþykkt samhljóða
Eftirlit vegna skipaskoðunar
Aðalfundur LÍÚ haldinn 27. - 28. október 2005 sam þykkir að samtökin beiti sér fyrir því að Siglingastofnun verði aðeins eftirlitsaðili með skoðunarstofunum en sé ekki einnig skoðunaraðili, þ.e. að verksvið þessara aðila skarist ekki.
Siglingastofnun er ekki eingöngu eftirlitsaðili með skoðunarstofum heldur einnig samkeppnisaðili. T.d. við breytingar á skipum setur Siglingastofnun skoðunarstofurnar til hliðar og fer í hlutverk skoðunarstofu. Útgerðarmenn sitja uppi með kerfi sem er hálf-einkavætt og miklu dýrara en það kerfi sem fyrir var.
Samþykkt samhljóða
Ráðgefandi stjórn Fiskistofu
Aðalfundur LÍÚ haldinn 27. og 28. október 2005 hvetur sjávarútvegsráðherra til að beita sér fyrir því að Fiskistofu verði sett ráðgefandi stjórn, líkt og Hafrannsóknastofnuninni og að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi eigi aðild að þeirri stjórn.
Samþykkt með öllum atkvæðum gegn einu












