Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ályktanir aðalfundar

Ályktanir aðalfundar LÍÚ 2004

Afnám línuívilnunar
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28.-29. október 2004 skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að svonefnd línuívilnun verði afnumin.  Línuívilnun felur í sér grófa mismunun þar sem einum útgerðarflokki eru veittar auknar veiðiheimildir á kostnað annarra.  Ívilnun til línubáta hefur leitt til þess að veiðiheimildir annarra hafa verið skertar um meira en 5000 tonn í þorski, ýsu og steinbít. Mismunun af þessu tagi samrýmist ekki hugmyndum um jafnræði og því að almennar reglur gildi um starfsemi þegnanna.

Samþykkt samhljóða

Loðnurannsóknir
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28.-29. október 2004 hvetur til aukinna loðnurannsókna.  Til dæmis mætti útbúa loðnuskip af minni gerð til loðnuleitar. Skipið kanni útbreiðslu stofnsins og afli gagna til úrvinnslu hjá Hafrannsóknastofnuninni og fylli í þau göt sem eru á þekkingu um hegðan og göngu loðnunnar. Skipið verði búið mælibúnaði sem Hafrannsóknastofnunin leggur til, þannig að gögn sem safnað verður nýtist til útreikninga á stærð stofnsins og útbreiðslu hans. Lögð er áhersla á að loðnurannsóknir eru mjög mikilvægar vegna alls lífríkisins í hafinu.

Samþykkt samhljóða

Niðurfelling veiðigjalds
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28.-29. október 2004 skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að veiðigjald sem lagt var á með lögum númer 85/2002 verði fellt úr gildi. Hér er um verulega mismunun að ræða þar sem fyrirtæki í öðrum atvinnugreinum sem nýta náttúruauðlindir eru ekki skattlögð með sama hætti. Einnig er hér um skattlagningu að ræða sem kemur harðast niður á landsbyggðinni.

Samþykkt samhljóða

Framsal aflaheimilda
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28.-29. október 2004 skorar á sjávarútvegsráðherra að beita sér fyrir því að lögum um stjórn fiskveiði verði breytt á þann veg að heimild til framsals aflamarks og aflahlutdeildar frá skipum í aflamarkskerfi til skipa í krókaaflamarkskerfi verði afnumin.

Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema einu

Meðafli við kolmunnaveiðar
Aðalfundur LÍÚ samþykkir að setja á fót 5 manna nefnd sem leggi til útfærslu á hvernig meðafli á kolmunnaveiðum verði talinn til aflamarks.  Nefndin ljúki störfum fyrir áramót.

Samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða

Eftirlitsiðnaður
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28. – 29. október 2004 skorar á sjávarútvegsráðherra að láta fara fram gagngera úttekt á kostnaði við ört vaxandi eftirlitsiðnað, svo sem Fiskistofu og fleiri stofnanir og hversu íþyngjandi slík starfsemi er fyrir sjávarútveginn. Því er beint til ráðherra að hann beiti sér fyrir einföldun á þessum málum þannig að starfsemi þessara stofnana verði gegnsærri.

Samþykkt samhljóða

Hvalveiðar
Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 28.- 29. október 2004 skorar á sjávarútvegsráðherra að standa við áður gerðar áætlanir um vísindaveiðar á hval.  Jafnframt skorar fundurinn á sjávarútvegsráðherra að halda áfram undirbúningi þannig að atvinnuveiðar á hval hefjist strax vorið 2006.

Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema einu

 

 

 


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta