Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Um Landssamband íslenskra útvegsmanna

Mánaberg_flott

Um Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ)

Félagið heitir Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ).  Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. 

Tilgangur LÍÚ er:

  • Að vera heildarsamtök útvegsmanna og málsvari þeirra í almennum hagsmunamálum.
  • Að stuðla að framförum í sjávarútvegi.
  • Að stuðla að sjálbærri og hagkvæmri nýtingu fiskistofna og vinna að  umhverfismálum.
  • Að gæta hagsmuna útvegsmanna við gerð kjarasamninga.
  • Að taka þátt í alþjóðasamstarfi og gæta hagsmuna útvegsmanna við samningsgerð íslenska ríkisins við önnur ríki. 
  • Að annast samninga við vátryggingafélögin um iðgjöld og fjárhæðir fiskiskipa og semja um kostnað við veitta aðstoð og björgunarlaun.
  • Að vera í forsvari við rekstur mála fyrir dómi og gagnvart stjórnvöldum er snerta sérstaklega hagsmuni og réttindi félagsmanna.

Aðild að LÍÚ eiga útvegsmenn sem gerast aðilar að útvegsmannafélagi innan LÍÚ. Útvegsmenn hafa frjálst val um hvar þeir eru í félagi, óháð félagssvæðum.

LÍÚ á aðild að Samtökum atvinnulífsins. Aðild að útvegsmannafélagi og LÍÚ felur jafnframt í sér beina aðild að Samtökum atvinnulífsins með þeim réttindum og skyldum sem kveðið er á um í samþykktum þess.  

Innan LÍÚ eru 12 svæðabundin útvegsmannafélög: Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Þorlákshafnar, Útvegsmannafélag Suðurnesja og Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar.

Landssamband íslenskra útvegsmanna
Borgartúni 35, 105 Reykjavík
sími: 591-0300
bréfsími: 591-0301
Netfang: gerdur@liu.is

Kennitala: 420269-0649


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta