Hvíldartími fyrir hvali
Hvíldartími fyrir hvali
Eins og á undanförnum árum var hvalaskoðun talsvert til umræðu í sérstakri undirnefnd vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins IWC árið 2008. Umræður þessar hafa mest snúist um hugsanleg neikvæð áhrif hvalaskoðunar á hvalastofna, en ýmsar rannsóknir benda til að hvalaskoðun geti haft truflandi áhrif á hegðun, útbreiðslu og jafnvel viðkomu hvalastofna. Vísindanefndin hefur á undanförnum árum hvatt til að stjórnvöld eða fyrirtækin sjálf setji sér leiðbeinandi vinnureglur um umgengni við hvali þar sem m.a. er kveðið á um lágmarksfjarlægð milli skips og hvala (gjarnan 100-300m), fjölda skipa á hverju svæði, og ”hvíldartíma” fyrir hvalina. Hvalaskoðunarnefndin ályktaði að reynslan af þessum leiðbeinandi vinnureglum væri víða slæm og lagasetningu þyrfti til að unnt væri að framfylgja slíkum reglum.
Engar slíkar reglur eru í gildi vegna hvalaskoðunar hér við land. Þar gilda first og fremst reglur um öryggi sjófarenda. Ljóst er að verði hvalveiðar í atvinnuskyni stundaðar hér við land í auknum mæli með útflutningi afurða, verður nauðsynlegt að setja reglur um mörk milli svæða hvalveiða og hvalaskoðunar.
Áhrif hvalaskoðunar á hvali, skýrsla vísindanefndar IWC, síða 64
www.iwcoffice.org/_documents/sci_com/SCRepfiles2008/SCReportFINAL.pdf












