Kynningarefni
Skýrsla stjórnar LÍÚ 2008-2009
Skýrsla stjórnar LÍÚ fyrir starfsárið 2008-2009 var gefin út í tengslum við 70. aðalfund landssambandsins sem fór fram í Reykjavík í lok október 2009. Í skýrslunni er rakið yfirlit yfir starfsemi liðins árs. Þar er einnig fjallað um ýmis viðfangsefni samtaka útvegsmanna, auk þess sem þar er að finna fróðlega tölulega samantekt um aflaheimildir o.fl.
Upplýsingar um íslenskan sjávarútveg
Snemma á árinu 2009 gaf LÍÚ út kynningarbækling, þar sem leitast var við að svara mörgum af þeim spurningum sem oft hafa komið upp í almennri umræðu. Hægt er að fá bæklinginn sendan með því að senda fyrirspurn til ss@liu.is eða hlaða honum niður með því að smella á myndina hér til vinstri.
Skýrsla stjórnar LÍÚ 2007-2008
Í tengslum við aðalfund landssambandsins gefur LÍÚ árlega út skýrslu, þar sem tekið er saman yfirlit yfir starfsemi liðins árs. Í henni er fjallað um helstu viðfangsefni sambandsins; hafrannsóknir og ráðgjöf, alþjóðlegt samstarf um fiskveiðistjórnun, auðlindamál, kjaramál, siglingamál, skipatækni og öryggismál, mennta- og umhverfismál auk þess sem þar er að finna fróðlega tölulega samantekt um aflaheimildir o.fl.
Fiskveiðistjórnun - Ábyrg stjórn fiskveiða við Ísland
Flestar náttúruauðlindir heimsins eru takmarkaðar. Fiskurinn í sjónum er þar engin undantekning, en hann er helsta náttúruauðlind Íslendinga, ásamt orku fallvatna og jarðhita. Sjávarútvegurinn er ein meginstoðin undir hagsæld þjóðarinnar og skapar Íslendingum stóran hluta útflutningstekna sinna. Íslenskir útvegsmenn hafa lengi fylgt þeirri stefnu að stunda beri sjálfbærar veiðar úr fiskistofnunum við landið og stuðla um leið að vexti þeirra. Þeir leggja áherslu á skynsamlega nýtingu fiskistofnanna og góða umgengni við sjávarauðlindina.
Hafið - stefna íslenskra stjórvalda
Yfirgripsmikill bæklingur um hafið og mikilvægi þess fyrir Ísland og íslenska þjóð. M.a. er fjallað um eðlisþætti hafsins, mengun og loftslagsbreytingar, lífríkið og sjálfbæra nýtingu, hafsbotninn, siglingar og ferðaþjónustu, þróunarsamvinnu og stefnumótun íslenskra stjórnvalda.
Sjómennt, fræðslusjóður sjómanna
Samtök atvinnulífsins (SA), Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) og Sjómannasamband Íslands (SSÍ) hafa gert með sér samkomulag um starfsmenntun sjómanna. Markmið Sjómenntar er að treysta stöðu sjómanna á vinnumarkaði með því að gefa þeim kost á að efla og endurnýja þekkingu sína og gera þá hæfari til að takast á við ný og breytt verkefni.
Með Sjómennt eiga sjómenn þannig kost á námi, hver á sínu sviði í tengslum við sitt starf .
Aukin hæfni og starfstengd menntun sjómanna eru nauðsynlegir þættir í meiri framleiðni og bættri samkeppnisstöðu útgerða íslenskra fiskiskipa.
Sjá nánar á heimasíðu Sjómenntar.












