Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu vefs

Vinnuskylda sjómanns sem kemst ekki í stöđu sína

Dómur sem fjallar um vinnuskyldu í þágu útgerðarmanns þegar skipverji kemst ekki í stöðu sína.

HRD 294/2000, kveðinn upp 1. febrúar 2001.

Deilt var m.a. um skyldu Ú til þess að vinna um borð í öðru skipi útgerðarinnar eftir að hann varð vinnufær, en þá var skip það sem hann var talinn ráðinn á í veiðiferð og ekki von á því til hafnar strax.

Í forsendum Hæstaréttar segir m.a. svo:

 "Aðila greinir einnig á um hvort áfrýjandi hafi fyrirgert rétti sínum til launa á umræddu tímabili með því að hafna öðrum störfum í þágu stefnda. Eins og að framan er rakið kom til tals um miðjan júlí 1998 að áfrýjandi hæfi störf í smiðju stefnda. Með þeim gögnum, sem liggja fyrir um þetta, er ekki í ljós leitt að stefndi hafi boðið áfrýjanda starf í smiðjunni. Það er hins vegar óumdeilt að áfrýjanda var boðið starf 2. vélstjóra á skipi stefnda Víði 14. eða 15. júlí 1998, en hann hafði áður gegnt vélstjórastarfi á því skipi. Skipið hélt til veiða 18. júlí, eftir að áfrýjandi varð aftur vinnufær. Jafnframt liggur fyrir að hann hafnaði þessu starfi. Af héraðsdómsstefnu er ljóst að hann byggði þá synjun á því áliti lögfræðings stéttarfélags hans að honum væri almennt óskylt að sinna öðrum störfum í þágu stefnda á umræddu tímabili en um borð í Akureyrinni. Áfrýjandi reisti málatilbúnað sinn í héraði ekki á öðrum málsástæðum að þessu leyti. Fyrir Hæstarétti hefur stefndi mótmælt sem of seint fram komnum málsástæðum áfrýjanda um að skiprúm á Víði sé ekki sambærilegt skiprúmi á Akureyrinni. Verður að telja að með þessari synjun og með hliðsjón af dómi Hæstaréttar í dómasafni 1983, bls. 1707 hafi hann fyrirgert rétti til staðgengilslauna á tímabilinu, enda byggðist synjunin ekki á því mati að starf eða aðbúnaður um borð væri með þeim hætti að það gæfi áfrýjanda sérstakar forsendur til að hafna því."
Dómur Hæstaréttar.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tćkniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta