Hćstiréttur um kjaramál
Nokkrir Hæstaréttardómar varðandi kjaramál sjómanna er að finna hér vinstra megin á síðunni.
HRD 371/2005Vorið 2001 fékk S ehf. almennt veiðileyfi fyrir fiskiskip, sem félagið gerði síðan út til veiða. Beindust þær einkum að því að afla löngu og keilu, en veiðar í þeim tegundum sættu þá ekki takmörkun á leyfilegum heildarafla samkvæmt 3. gr. laga nr. 38/1990. Þrátt fyrir tillögu Hafrannsóknarstofnunarinnar um að heildarafli þessara tegunda yrði takmarkaður fyrir fiskveiðiárið 2001/2002 var með reglugerð, sem gefin var út 5. júní 2001, ákveðið að veiðar í þeim skyldu ekki háðar slíkri takmörkun. Hinn 16. ágúst 2001 var gefin út ný reglugerð um leyfilegan heildarafla á fiskveiðiárinu og náði takmörkun á heildarafla botnfisktegunda samkvæmt henni m.a. til löngu og keilu. Þá var þar kveðið á um að úthlutun aflahlutdeildar í þessum tegundum skyldi taka mið af veiðireynslu á tímabilinu 1. júní 1998 til 31. maí 2001. Við þá úthlutun fékk S ehf. enga aflahlutdeild í sinn hlut þar sem veiðireynsla þess í júní til ágúst 2001 féll utan viðmiðunartímabilsins. Krafðist félagið viðurkenningar á bótaskyldu Í af þessu tilefni og byggði m.a. á því að ekki hefði verið staðið rétt að setningu reglugerðarinnar. Ekki var fallist á að ákvæði 2. mgr. 3. gr. laganna, þar sem kveðið er á um að heildarafli fyrir komandi fiskveiðiár skuli ákveðinn fyrir 1. ágúst ár hvert, hafi staðið í vegi fyrir því að í reglugerðinni yrði kveðið á um takmörkun á heildarafla í löngu og keilu. Á hinn bóginn var talið að leggja bæri þann skilning í 1. mgr. 8. gr. laganna að við ákvörðun viðmiðunartímabils við úthlutun aflahlutdeildar í þessum tegundum hefði þurft að taka mið af þremur síðustu árum fyrir setningu umræddrar reglugerðar. Ákvæði hennar um lok viðmiðunartímabilsins var því talið stangast á við umrætt ákvæði og bótaskylda Í á tjóni S ehf. viðurkennd vegna úthlutunar aflahlutdeildar í löngu og keilu á grundvelli veiðireynslu félagsins frá 1. júní til 16. ágúst 2001.
Dómur Hæstaréttar.












