Uppgjör á Hafró afla
Úr lögum um stjórn fiskveiða nr. 38/1990.
XXIX. [Á fiskveiðiárunum 2002/2003, 2003/2004 og 2004/2005 er skipstjóra fiskiskips heimilt að ákveða að hluti af afla skipsins reiknist ekki til aflamarks þess. Sá hluti sem þannig reiknast ekki til aflamarks skipsins skal þó aldrei nema meiru en sem nemur 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla sem hlutaðeigandi skip veiðir á hverju fiskveiðiári. Heimild þessi er háð því að eftirfarandi skilyrðum sé fullnægt:]1)
1. Aflanum sé haldið aðskildum frá öðrum afla skipsins og hann veginn sérstaklega og skráður.
2. Aflinn sé seldur á viðurkenndum uppboðsmarkaði fyrir sjávarafurðir og andvirði hans renni til Hafrannsóknastofnunarinnar.
Sé framangreind heimild nýtt skulu forráðamenn uppboðsmarkaðarins þar sem aflinn er seldur standa skil á andvirði hins selda afla til Hafrannsóknastofnunarinnar að frádregnum hafnargjöldum og kostnaði við uppboðið. Þá skal útgerð skipsins fá 20% af andvirði selds afla sem skiptist milli útgerðar og áhafnar samkvæmt samningum þar um.
Ákvarðandi bréf Ríkisskattstjóra þann 10.10. 2003 varðandi sölu sjávarafla utan aflamarks - uppgjör við Hafrannsóknarstofnun.












