Séreignarsparnaður
Mótframlag í séreignarsjóð:
Samkvæmt samningi við FFSÍ og SSÍ frá 30.október 2004:
Þegar skipverji leggur til 2% eða hærra viðbótarframlag af öllum launum í séreignarsjóð greiðir útgerðarmaður 2% mótframlag af öllum launum.
Samkvæmt kjarasamningi við VSFÍ frá 9. maí 2001:
Þegar vélstjóri leggur til viðbótarframlag í séreignarsjóð greiðir úrgerðarmaður framlag á móti sem hér segir:
Frá 1. júní 2001 skal mótframlag útgerðar vera 1% af fastri fjárhæð sem skal vera hin sama og kauptrygging á gildistíma samnings þessa, gegn 2% framlagi starfsmanns.
Frá 1. júní 2002 skal mótframlag útgerðar vera 2% af fastri fjárhæð sem skal vera hin sama og kauptrygging á gildistíma samnings þessa, gegn 2% framlagi starfsmanns.
Frá 1. júlí 2002 skal greiða 1% framlag í séreignarsjóð án framlags af hálfu vélstjóra. Framlag þetta er reiknað af kauptryggingu. Breytingin nær aðeins til þeirra vélstjóra sem ekki nýta sér heimild til viðbótarlífeyrissparnaðar.
Greiði vélstjóri 2% eða meira í viðbótarlífeyrissparnað gegn 2% mótframlagi útgerðarmanns leiðir þessi viðbót ekki til hækkunar á því. Framlag þetta greiðist til séreignardeildar þess lífeyrissjóðs sem viðkomandi vélstjóri á aðild að, nema hann geri sérstakan samning við annan lífeyrissjóð um framlagið.












