Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ex works uppgjör vinnsluskipum

Uppgjör á vinnsluskipum þegar selt er ex works.

Eins og segir í grein 1.27 í kjarasamningi L.Í.Ú. og S.S.Í. og samsvarndi greinum í kjarasamningum V.F.S.Í. og F.F.S.Í. fer um skiptaverðmæti aflans skv. lögum nr. 24/1986 um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins sbr. lög nr. 21/1987 um breytingu á þeim.

Í lögunum segir að þegar seldur er afli fiskiskips sem frystir bolfisk um borð, heilan eða flakaðan, er skiptaverðmætið miðað við fob- eða cif-verðmæti framleiðslunnar við útflutning.

Í nóvember 1994 staðfesti Hæstiréttur Íslands dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli gegn Hval hf. þess efnis að útgerðinni væri heimilt að gera upp c&f-sölu afurða miðað við fob uppgjörsreglu skv. kjarasamnigi, enda væri sú aðferð meginregla í uppgjöri við áhafnir vinnsluskipa, nema þegar selt er sérstaklega samkvæmt cif skilmálum.

Frá áramótum hefur verið nokkuð um það að afurðir vinnsluskipa hafi verið seldar "ex works", en í kjarasamningum segir ekki sérstaklega hvernig skuli ákvarða skiptaverðmæti við sölu með þessum flutningaskilmálum. Útgerðir verða því að finna rétt uppgjörsverð við sjómenn með því að reikna út fob verð. Gera verður upp við þá sem í hlut eiga með þessum hætti frá áramótum eða þegar farið var að selja ex works.

Samkvæmt alþjóðaflutningaskilmálunum Incoterms þýðir "ex works" (Frá verksmiðju) að einu skyldur seljandans eru að hafa vöruna tilbúna fyrir kaupandann við (verksmiðjudyr/verslun/lager). Seljandi er ekki ábyrgur fyrir lestun flutningatækisins, sem kaupandi leggur til, nema að annað sé ákveðið. Kaupandi ber allan kostnað og ábyrgð á tryggingu og flutningi vörunnar til ákvörðunarstaðarins, sem og á kostnaði við skjöl, tollameðferð og greiðslu á móttökugjöldum í lestunarhöfn. Skilmálarnir fela þannig í sér mjög takmarkaðar skyldur fyrir seljandann.

Fob (frítt um borð) er skilgreint skv. sömu skilmálum þannig að varan er flutt af seljanda að skipi og komið um borð. Ábyrgð vegna skemmda eða ef varan glatast flyst frá seljanda yfir til kaupanda þegar varan er hífð yfir lunningu skipsins. Á sama tíma flyst tryggingarábyrgð yfir til kaupanda.

Með hliðsjón af þeim mun sem er á ex works og fob ber útgerðum samkvæmt kjarasamningi og þeim dómi sem hér hefur verið vísað til að reikna hvert fob verðmæti afurðanna er eins og áður segir og nota það fob verð í uppgjöri við áhafnir vinnsluskipanna. Sé tekið mið af Incoterm skilgreiningunum er þessi munur kostnaðurinn við útflutnningsskjöl, flutningskostnaður að skipshlið og útskipunargjöld, sem bæta þarf við Ex works til þess að fá Fob verð. Mikilvægt er að farið verði yfir þetta mál með áhöfnum þeirra skipa, sem í hlut eiga.

Hæstaréttadómur varðandi uppgjör c&f,cif og fob (Hvalur hf.)


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta