Lengd uppsagnarfrests
Uppsagnarfrestur skipverja fer eftir hvaða stöðu hann hefur gegnt, starfsaldri og starfstíma hjá viðkomandi útgerð.
1.
Undirmenn eiga 7 daga uppsagnarfrest skv. 1. mgr. 9. gr. sjómannalaga. Undirmenn sem starfa skv. kjarasamningum LÍÚ við stéttarfélög sjómanna geta átt rétt á lengri uppsagnarfrest hafi þeir unnið samfellt hjá sömu útgerð síðustu 3 ár, 5 ár og 10 ár. Eftir 3 ára samfelldan starfsaldur hjá sömu útgerð á skipverji 1 mánuð til viðbótar, eftir 5 ár á hann 2 mánuði og eftir 10 ára samfellt starf á hann 3 mánuði.
Skipverji á rétt á greiðslu kauptryggingu fyrir viðbótarmánuðina.
2.
Yfirmenn eiga 3. mánaða uppsagnarfrest skv. 2. mgr. 9. gr. sjómannalaga. Yfirmenn sem starfa skv. kjarasamningum LÍÚ við stéttarfélög sjómanna geta áttt rétt á lengri uppsagnarfrest hafi þeir unnið samfellt hjá sömu útgerð síðustu 3 ár, 5 ár og 10 ár. Eftir 3 ára samfelldan starfsaldur hjá sömu útgerð á skipverji 1 mánuð til viðbótar, eftir 5 ár á hann 2 mánuði og eftir 10 ára samfellt starf á hann 3 mánuði.
Skipverji á rétt á greiðslu kauptryggingu fyrir viðbótarmánuðina.
3.
Sé skip í rekstri og óskað er eftir að skipverji vinni út uppsagnarfrest sinn, þá ber honum laun til samræmis við vinnuframlag sitt.
Dæmi: Ef undirmaður sem á 4 mánaða uppsagnarfrest er beðinn um að vinna fyrstu tvo mánuðina, þá framlengist réttur hans til mánaðarkaups samsvarandi. Hann á rétt á 1 mánuði á mánaðarkaupi og 3 á kauptrygginu, hann vinnur í 2 mánuði á mánaðarkaupi og á því rétt á 3. mánuðnum á mánaðarkaupi og kauptryggingu fyrir þann 4.
4.
Skipverjar sem starfa skv. kjarasamning LÍÚ og VM eiga rétt á 3 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Ákvæði um lengri uppsagnarfrest vegna starfsaldurs hjá útgerð eiga ekki við um vélstjóra.












