Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Heimild skipstjóra til að víkja skipverja úr skiprúmi

 Skipstjóri getur vikið skipverja úr skiprúmi skv. 23. gr. sjómannalaga ef:
   1. skipverji verður lengur en um stundarsakir ófær til vinnu vegna veikinda eða slysa,
   2. skipverji er haldinn sjúkdómi sem öðrum mönnum á skipi stafar hætta af,
   3. læknisskoðun skv. 33. gr. leiðir í ljós að skipverji er eigi fær til að vinna starf sitt þótt eigi sé hann sjúkur.

Ákvæði 36. gr. um rétt skipverja til launa o.fl. eiga við um brottvikningu úr skiprúmi eftir 1. mgr.

Skipstjóri getur enn fremur vikið skipverja úr skiprúmi skv. 24. gr. sjómannalaga ef:
   1. skipverji reynist óhæfur til þess starfa sem hann var ráðinn til,
   2. skipverji kemur ekki til skips á ákveðnum tíma og skipið á að láta úr höfn eða ráða verður annan mann í hans stað,
   3. skipverji verður sekur um mikil afglöp í starfi sínu svo sem það að hann óhlýðnast ítrekað skipunum yfirmanna sinna eða beitir aðra menn ofbeldi sem á skipi eru staddir,
   4. skipverji er ítrekað drukkinn um borð, nema brot sé því alvarlegra, eða er undir áhrifum fíkniefna um borð,
   5. skipverji verður sekur um þjófnað eða annan meiri háttar glæp eða leynir manni á skipsfjöl,
   6. skipverji leynir tollskyldum varningi eða þeim varningi sem útflutningsbann gildir um á fráfararstað skipsins eða innflutningsbann á ákvörðunarstað þess eða
   7. skipverji ber ágreining, sem rís af starfi hans á skipinu, undir erlend stjórnvöld.

Ef skipstjóri vill víkja skipverja úr skiprúmi skv. 3.-7. tölul. skal hann skýra skipverja frá því hið fyrsta og eigi síðar en 7 dögum eftir að hann fékk vitneskju um þau atvik sem brottvikning byggist á nema sérstakar ástæður réttlæti lengri frest.

Skipverji, sem vikið er úr skiprúmi samkvæmt þessari grein, á ekki rétt á kaupi lengur en hann gegndi starfi sínu.

Ef skipverji gat ekki komið til skips vegna veikinda eða meiðsla, sem hann á ekki sök á, skal hann þó eiga rétt til kaups samkvæmt fyrirmælum 36. gr.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta