Starfslok skipverja
Ástæður starfsloka skipverja og réttur til greiðslu geta verið margvíslegar.
Ganga á frá starfslokum skriflega og með sannanlegum hætti, ef þess er nokkur kostur.
Heimilt er að segja sjómanni upp störfum með hefðbundnum fyrirvara um uppsagnarfrest. Ef sjómanni er sagt upp, þá á hann að vinna út uppsagnafrestinn. Hann á því rétt til launa í samræmi við aflahlut skipsins eða eftir atvikum kauptryggingu ef ekkert fiskast.
Sjómaður getur með sama hætti sagt starfi sínu lausu með hefðbundnum fyrirvara um uppsagnafrest.
Nánari upplýsingar um starfslok skipverja sem rekja má til háttsemi skipverja í störfum sínum er að finna hér.












