Má segja upp skipverja sem er óvinnufær?
Skipstjóri getur vikið skipverja úr skiprúmi skv. 23. gr. sjómannalaga nr. 35/1985, ef:
1. skipverji verður lengur en um stundarsakir ófær til vinnu vegna veikinda eða slysa,
2. skipverji er haldinn sjúkdómi sem öðrum mönnum á skipi stafar hætta af,
3. læknisskoðun skv. 33. gr. leiðir í ljós að skipverji er eigi fær til að vinna starf sitt þótt eigi sé hann sjúkur.
Taki skipstjóri ákvörðun um að víkja skipverja úr skiprúmi skv. 23. gr., þá eiga ákvæði 36. gr. sjómannalaga um rétt skipverja til greiðslu launa o.fl.
Uppsögn skipverja skv. 23. gr. sjómannalaga skerðir þannig ekki slysa- og veikindarétt starfsmanns, þ.e. ef uppsagnarfrestur er skemmri en veikindaréttur. Starfsmaður á rétt á launum í samræmi við áunninn slysa- og veikindarétt óháð uppsögninni. Vinnuveitandi getur því ekki sagt skipverja upp eftir að hann er orðinn óvinnufær beinlínis í þeim tilgangi að komast hjá greiðslu slysa- og veikindalauna.












