Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Læknisskoðun

Skipverji er skyldugur til að láta lækni rannsaka heilsufar sitt ef skipstjóri krefst þess. Sama gildir um ef skipstjóri hefur ástæðu til að ætla að skipverji sé sjúkur skal hann sjá til þess að skipverji gangist undir læknisskoðun sé þess kostur skv. 33. gr. sjómannalaga nr. 35/1985.

Fari skipstjóri fram á læknisskoðun skv. 33. gr. þá skal hún framkvæmd skipverja að kostnaðarlausu. Rétt er að taka fram að hér er aðeins átt við kostnað vegna læknisskoðunarinnar sjálfrar, en ekki kostnað vegna lyfja, meðferðar eða annarra atriða sem tengjast ekki skoðuninni sjálfri.

Heimild skipstjóra til að skylda skipverja til að láta lækni rannsaka heilsufar sitt hefur verið í sjómannalögum frá fyrstu tíð. Það hefur verið talin sanngjörn krafa að skipverji geti þurft að undirgangast frekari læknisrannsóknir eftir kröfu skipstjóra til að staðfesta veikindi, slys eða að heilsufar skipverja standist þær kröfur sem gerðar eru til sjómanna.

Skipstjóri getur alltaf krafist sérstakrar læknisskoðunar, enda þótt að skipverji sé með gilt læknisvottorð og hafi lagt það fram. Í þeim tilfellum ber skipstjóra að meta gildi framlags vottorðs og ákveða hvort að rétt sé að krefjast sérstakrar læknisskoðunar eða ekki. Það er mat skipstjórans hverju sinni hvort og hvenær hann krefst þessa af einstökum skipverjum. Skipstjórinn ber ábyrgð á öryggi áhafnarinnar um borð og að heilbrigði hennar eða störfum sé ekki stefnt í voða.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta