Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Tilkynning um óvinnufærni

Tilkynningarskylda skipverja
Í kjarasamningum LÍÚ og SSÍ (gr. 1.21), FFSÍ (gr. 1.21) og VM (gr. 1.40), er efnislega samhljóða ákvæði um tilkynningarskyldu skipverja.

   „Verði skipverji óvinnufær af völdum veikinda eða meiðsla, skal hann tilkynna það svo fljótt sem verða má skipstjóra eða útgerðarmanni. Skipverja ber að leita læknis svo fljótt sem verða má og hann telur sig óvinnufæran og þegar skip kemur að landi. Skal skipverjinn skila læknisvottorðinu til útgerðarmannsins svo fljótt sem verða má. Útgerðin skal greiða kostnað vegna öflunar læknisvottorða. 
   Skipverji, sem verður óvinnufær, skal tilkynna skipstjóra eða útgerðarmanni strax, þegar hann er orðinn vinnufær að nýju.„

Veikindafjarvistir skal tilkynna án tafar og strax á fyrsta degi til skipstjóra, útgerðarstjóra eða til þess sem útgerðin ákveður. Vinnuveitandi ákveður með hvaða hætti tilkynna skuli veikindi.

 


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta