Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Óvinnufærni

Óvinnufærni
Skilgreining á óvinnufærni skv. 36. gr. sjml. gengur út á að skipverja sé ómögulegt að sinna starfi sínu eða að honum sé brýn nauðsyn til að leita sér lækninga. Það er með öðrum orðum ekki nóg að staðfesta tilvist einhvers sjúkdóms eða meiðsla, heldur þarf að sýna fram á að starfsmaður sé með öllu óvinnufær vegna afleiðingar vinnuslyss eða veikinda.

Getur skipverji unnið létt störf?
Hugsanlegt er að skipverja sé ómögulegt að vinna venjuleg störf um borð, en hann geti unnið önnur léttari störf. Þá er skipverji einungis óvinnufær til ákveðinna starfa.

Í þessum tilvikum ber skipverja að mæta til vinnu og vinna þau störf sem hann getur framkvæmt, enda verða þau störf talin sambærileg [sbr. dóm Hæstaréttar 1983, bls. 1707]. Þessi heimild er háð því að skipverji sé óvinnufær til þeirra starfa sem hann er ráðinn til, nýja starfið sé auðveldara miðað við heilsu hans og honum því kleift að sinna því meðan hann er að ná sér að fullu.

Læknisvottorð um óvinnufærni
Á læknisvottorði þarf að koma fram að starfsmaður sé haldinn sjúkdómi og að hann sé óvinnufær vegna þess sjúkdóms. Einnig skal koma fram hvenær læknisskoðun fór fram, frá hvaða tíma læknir telur sjúkling vera óvinnufæran og mat hans á hversu lengi óvinnufærni muni standa. Ef starfsmaður er vinnufær til annarra léttra starfa skal koma fram að hann sé einungis óvinnufær að hluta.

Skv. 11. gr. læknalaga  nr. 53/1988 ber lækni að sýna varkárni og nákvæmni við útgáfu vottorða og annarra læknayfirlýsinga. Hann skal votta það eitt er hann veit sönnur á. Læknir skal ekki staðhæfa annað í vottorði en það sem hann hefur sjálfur staðreynt. Greina skal glögglega milli frásagnar annarra, eigin athugunar læknis og álits hans. Gefnar hafa verið út sérstakar reglur um gerð og útgáfu læknisvottoða, nr. 586/1991.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta