Í ráðningarsambandi
Gilt ráðningarsamband
Skipverji verður að vera í gildu ráðningarsambandi við útgerð til að eiga rétt til greiðslu launa vegna slysa eða veikinda á ráðningartíma. Slasist eða veikist skipverji á síðasta degi ráðningartíma síns hjá útgerð getur engu að síður skapast greiðsluskylda á hendur útgerðinni skv. 36. gr. sjml.
Fyrstu dagar í starfi
Skipverji, sem forfallast vegna veikinda á ekki rétt til launa í fleiri daga en hann hefur verið í þjónustu útgerðarmanns skv. 1. mgr. 36. gr. Hafi hann t.d. unnið í 10 daga er rétturinn hans samsvarandi eða 10 dagar.
Hættur hjá útgerð, kominn til annarrar útgerðar
Hafi skipverji látið af störfum eða ráðningartíma lokið af öðrum ástæðum, áður en óvinnufærni kemur til, á skipverji ekki rétt til launa hjá þeirri útgerð sem hann síðast starfaði hjá, enda þótt óvinnufærni megi rekja til starfa hans þar.












