Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Brottfall réttar til greiðslu skv. 36. gr. sjml.

Samkvæmt 4. mgr. 36. gr. sjml. á skipverji ekki rétt á kaupi þann tíma sem hann hliðrar sér ólöglega hjá að inna störf sín af hendi, né fyrir þann tíma sem hann er óstarfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur leynt vísvitandi við ráðningu sína. Sama gildir ef skipverji er ekki starfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur sjálfur bakað sér af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.

Greinin vísar til þriggja skilyrða sem þarf að skoða sérstaklega í hvert sinn:
   1. Hliðraði skipverji sér ólöglega hjá því að inna störf sín af hendi?
   2. Leyndi hann vísvitandi við ráðningu að hann væri haldinn sjúkdómi eða meiðslum sem hefðu áhrif á ákvörðun um ráðningu?
   3. Bakaði skipverji sjálfur þann sjúkdóm eða meiðsli af ásetningi eða stórfelldu gáleysi?

1. Kom sér ólöglega undan starfsskyldum sínum
Í greininni er almennt skilyrði fyrir greiðslu kaups að skipverji hafi ekki komið sér undan starfsskyldum sínum með ólöglegum hætti. Komi það í ljós þá á hann ekki rétt til greiðslu kaups fyrir þann tíma.

2. Leyndi vísvitandi upplýsingum um heilbrigði sitt við ráðningu
Greinin vísar til þess að ef skipverji leynir upplýsingum um veikindi eða meiðsli við ráðningu, sem hann veit eða má vita um að þá getur hann ekki krafist launa þegar hann er forfallaður vegna þeirra.

Við ráðningu á því að kanna heilsufar skipverja og spyrja hvort sérstök ástæða sé fyrir þann sem sækir um starf á skip að upplýsa um heilsufar sitt, áður en tekin er ákvörðun um ráðningu.

Skipstjóri hefur rýmri heimildir til að spyrja umsækjendur um störf skipverja, en almennt gengur í landi sbr. 49. gr. sjml. nr. 35/1985. Skipstjórum er falin mikil ábyrgð við að tryggja öryggi áhafna sinna. Það er því sanngjörn og eðlileg krafa að þeir sem vilja ráða sig á skip upplýsi skipstjóra eða útgerðarmann rækilega um sitt heilsufar og leggi fram nauðsynleg gögn um læknisskoðun eða vottorð ef því er að skipta. Markmiðið er að skipverji hafi raunverulega þá hæfni og heilsu sem störf um borð í skipi gera kröfu um.

Til samanburðar má nefna að á Norðurlöndunum hefur verið sett það skilyrði að sjómenn legðu fram læknisvottorð um heilsufar sitt, áður en til ráðningar geti komið. Í 17. gr. norskra laga um öryggi skipa frá 2007 er lögð skýr skylda á þá sem vinna um borð í skipum að leggja fram læknisvottorð um andlegt og líkamlegt heilbrigði fyrir ráðningu á skip.

3. Ásetningur eða stórfelld gáleysi skipverja sjálfs
Ef skipverji er ekki starfhæfur vegna sjúkdóms eða meiðsla sem hann hefur sjálfur bakað sér af ásetningi eða stórfelldu gáleysi þá á hann ekki rétt á kaupi skv. 36. gr. sjml.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta