Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Forsendur ráðningar

Þegar tekin er ákvörðun um að leita eftir sjómanni til starfa, er mikilvægt að hafa nokkrar forsendur í huga:

1.
Á að ráða skipverjann í ótímabundna stöðu, tímabundið á vertíð, í afleysingar eða í einstaka veiðiferðir? Réttindi og skyldur aðila velta mikið á því í hvaða stöðu og til hvaða tíma skipverji er ráðinn og að hann hafi verið sannanlega upplýstur um það við upphaf ráðningar.

2.
Störf skipverja krefjast góðrar heilsu og því þarf að huga að heilsufari þeirra sem ráða á um borð. Skipstjóri ber ábyrgð á öryggi áhafnarinnar sem og að sá skipverji sem ætlar að ráða sig til starfa um borð ber að upplýsa skipstjóra um heilsufar sitt, þ.e. sjúkdóma eða meiðsl sem geta haft veruleg áhrif á störf hans um borð.

3.
Skipverjar eiga að halda utan um sín atvinnuréttindi sjálfir og eiga að vera tilbúnir að framvísa staðfestingu um réttindin og stöðu þeirra við ráðningu. Sama á við um upplýsingar um reynslu af fyrri störfum og sérþekkingu, ef við á.

4. 
Meðmæli eða umsagnir fyrri vinnuveitenda geta stundum skipt máli við ráðningu. Ef skipverjar geta vísað til meðmæla annarra eða umsagna um fyrri störf þá eiga þeir að gera það, sé eftir því leitað.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta