Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Almennar starfsskyldur

Skipverjar skulu hegða sér sómasamlega, kurteislega og friðsamlega og gæta nákvæmlega þeirra fyrirmæla sem sett verða um góða siði og reglu á skipinu. Þegar skipverji fær skipun frá yfirmanni sínum skal hann láta á sér skilja með skýrum svörum að hann hafi skilið skipunina.

Skipverji skal hlýða skipunum yfirboðara sinna er að starfinu lúta, vera umhyggjusamur um skip og farm og vinna störf sín með áhuga og trúmennsku, sbr. 58. gr. sjómannalaga.

Skipverji er skyldur að koma á ákveðnum tíma í skiprúmið. Eftir það má hann ekki fara frá skipi leyfislaust.

Skipverja, sem ekki er staddur á skipi en veit eða má vita að hann muni bráðlega verða kvaddur til skips, er skylt, eftir því sem honum er unnt, að fylgjast með ferðum skipsins og vera tilbúinn að taka upp störf sín að nýju þegar þess er þörf enda skal útgerðarmaður eða skipstjóri veita honum greiðar upplýsingar um ferðir skips, eftir því sem frekast er unnt.

Geti skipverji ekki mætt til skips á réttum tíma skal hann tafarlaust skýra skipstjóra frá því. Skipverji, sem ekki kemst til skips af ástæðum sem útgerðarmanni verður ekki um kennt, skal sjálfur bera hallann af, sbr. 59. gr. sjómannalaga.


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta