Ráðning skipverja
Útgerðarmaður skal sjá um að gerður sé skriflegur ráðningarsamningur við skipverja skv. 6. gr. sjómannalaga nr. 35/1985. Samningur skal vera í tvíriti og heldur hvor sínu eintaki.
Skipstjóri getur, í umboði útgerðarmanns, ráðið skipverja og gilda þá um það ákvæði 1. mgr. 6. gr. Skipstjóri getur einnig, með sama skilorði, vikið skipverja úr skiprúmi eða sagt honum upp störfum, sbr. 23.–25. gr. sjómannalaga.
Ráðningarsamning er að finna hér.












