Í brennidepli
4. Febrúar 2010
„Þarf að útkljá deilurnar um kvótakerfið"
„Það er alveg ljóst að verði þessi leið farin munu þessi fyrirtæki líða undir lok í þeirri mynd sem þau eru í dag," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Með því að bjóða upp kvótann þá mun fyrirtæki eins og þetta, sem byggir á samfellu frá veiðum að markaði, ekki lengur getað lofað kaupendum að þeir fái sinn fisk," bætir hann við.
Eiríkur segir ennfremur: „Þeir sem kaupa af okkur ýsuflökin, sem fara fersk til Englands, vita að þeir fá ýsuna á hverjum degi og það hefur ekki klikkað. Ef þetta verður boðið upp þá vitum við ekki hvort við fáum kvóta. Við getum fengið á einu tímabili en ekki öðru. Þá er þetta bara búið. Mér sýnist að innan fjögurra ára munu öll stærstu sjávarútvegsfyrirtækin líða undir lok í þeirri mynd sem þau nú eru."
Þetta kemur fram í viðtali Víkurfrétta á Suðurnesjum við Eirík í dag. Viðtalið ber yfirskriftina „Þarf að útkljá deilurnar um kvótakerfið." Eiríkur kemur víða við í löngu viðtali og segir m.a. í lok viðtalsins: „Það þarf að útkljá þetta. Það er ekki hægt að búa við þá ógn endalaust að það eigi að taka þetta af okkur. Ég sé það t.d. að alltaf í aðdraganda kosninga að menn fara að selja kvóta. Það þarf að ákveða í eitt skipti fyrir öll hvernig þetta kerfi á að vera til lengri tíma þannig að fyrirtækin hafi öruggt rekstrarumhverfi og hafi þor til að byggja upp."
Viðtalið má lesa hér í heild.













