Í brennidepli
18. Desember 2009
„Fyrningarógninni verður að eyða"
„Það verður að eyða þeirri ógn sem vofir yfir sjávarútveginum með stefnu um fyrningu aflaheimilda. Ég lít svo á - og er þar sammála kollegum mínum í greininni - að fyrningin hefjist með frumvarpi því sem sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi," skrifar Eiríkur Tómason, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 4. desember sl.
Eiríkur rekur í grein sinni stuttlega þá þróun sem orðið hefur í íslenskum sjávarútvegi frá því að kvótakerfið var sett á 1984 og gerir m.a. að umtalsefni áhrifin af heimild til framsals aflaheimilda.
„Eftir 1990 hófst samþjöppun í greininni fyrir alvöru með sölu á aflaheimildum í samræmi við gildandi reglur. Deilt hefur verið um fyrirkomulagið, en atvinnugreinin hefur sjálf annast og kostað þessar hagræðingaraðgerðir. Þeim fylgdi aukin skuldsetning en um leið aukin arðsemi. Þrátt fyrir mikinn samdrátt í aflamarki okkar helstu tegunda og þá fyrst og fremst þorsks hefur þetta verið framkvæmanlegt."
Í greininni ræðir Eiríkur um þá ógn sem hann segir fyrningarhugmyndir stjórnvalda vera við sjávarútveginn. „Þessu er kastað fram um svipað leyti og rekstraraðilar í sjávarútvegi telja að náð sé hátindi samþjöppunnar veiðiheimilda, sem greitt hefur verið fyrir með eigin fé og skuldsetningu," skrifar hann og bætir síðar við: „Það þarf engar úttektir frá sérfræðingum til að sýna fram á að fyrningarleið mun draga allan mátt úr greininni á stuttum tíma. Tapið lendir svo á þjóðinni allri."













