Í brennidepli
4. Nóvember 2010
Ræður og erindi frá aðalfundi LÍÚ 2010
Ræður sem fluttar voru á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í síðustu viku sem og glærur sem fylgdu erindum fyrirlesara eru allar aðgengilegar hér á vefsíðunni undir hlekknum Um LÍÚ/Aðalfundir. Þetta efni má einnig nálgast hér.
1. Nóvember 2010
„Árangri og orðspori okkar má ekki kasta fyrir róða með upptöku og uppboði aflaheimilda"
„Íslenskur sjávarútvegur er vel skipulagður, hátæknivæddur þekkingariðnaður þar sem fjölmargir aðilar leggja hönd á plóg, bæði beint og óbeint. Við eigum í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi um sölu sjávarafurða og alla daga eru þúsundir manna og kvenna að vinna frábært starf í íslenskum sjávarútvegi og tengdum greinum," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, m.a. í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna.
8. Júní 2010
Skuldir sjávarútvegsins 2,4% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja
Skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja voru 543 milljarðar króna í lok ársins 2008. Heildarskuldir íslenskra fyrirtækja námu á sama tíma samtals 22.675 milljörðum króna að því er kemur fram í Tíund, riti ríkisskattstjóra. Samkvæmt þessu voru skuldir sjávarútvegsfyrirtækja því 2,4% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja í árslok 2008.
30. Mars 2010
„Grundvallarbreyting á fiskveiðistjórnun og upphaf fyrningarleiðar"
„Þetta frumvarp snýst fyrst og síðast um grundvallarbreytingu á fiskveiðistjórnun og það markar upphaf fyrningarleiðar sem við höfum barist svo eindregið gegn," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ. Hann birti fyrir nokkrum dögum grein undir heitinu Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi, þar sem hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir framgöngu þeirra í skötuselsmálinu og skorar jafnframt á þau að fella úr gildi umrætt ákvæði nýsamþykkts frumvarps sjávarútvegsráðherra.
4. Febrúar 2010
„Þarf að útkljá deilurnar um kvótakerfið"
„Það er alveg ljóst að verði þessi leið farin munu þessi fyrirtæki líða undir lok í þeirri mynd sem þau eru í dag," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Með því að bjóða upp kvótann þá mun fyrirtæki eins og þetta, sem byggir á samfellu frá veiðum að markaði, ekki lengur getað lofað kaupendum að þeir fái sinn fisk," bætir hann við.













