Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Í brennidepli

4. Nóvember 2011

Stjórnkerfi fiskveiða byggi áfram á aflamarkskerfinu

„Aðalfundur LÍÚ haldinn í Reykjavík 27. og 28. október 2011, skorar á stjórnvöld að ganga nú þegar til samstarfs við útvegsmenn um framtíðarskipulag fiskveiðistjórnunar á Íslandi." Svo segir m.a. í tillögu sem samþykkt var samhljóða á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna þann 28. október sl. Alls voru sjö tillögur samþykkar á aðalfundinum - allar samhljóða. 
Tillögurnar má sjá hér í heild.

1. Júní 2011

Nýr bæklingur um íslenskan sjávarútveg

Íslenskur sjávarútvegur 2011

Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur gefið út nýjan bækling um íslenskan sjávarútveg.

13. Apríl 2011

„Kvótakerfið merkilegasta framtak Íslands í skipulagsmálum"

Kvótakerfið er merkilegasta framtak Íslands í skipulagsmálum og að innkalla og endurselja kvótann er í raun ómerkilegur þjófnaður. Þetta segir Þráinn Eggertsson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, í viðtali í  tímaritinu Frjálsri verslun. Þráinn segir umræðuna um kvótakerfið óheilbrigða þráhyggju og að stefna stjórnvalda sé að skapa glundroða og gjaldþrot í sjávarútvegi, sem sé helsti lykillinn að efnahagsbata.

7. Janúar 2011

Þeir sem tóku á sig skerðingu njóti aukningar

„Þorskurinn er verðmætasta fisktegund okkar og því eru það afar jákvæðar fréttir að heildarvísitala þorsksins mældist 20% hærri en í fyrra," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, um niðurstöður haustralls Hafrannsóknastofnunarinnar.

4. Nóvember 2010

Ræður og erindi frá aðalfundi LÍÚ 2010

Ræður sem fluttar voru á aðalfundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í síðustu viku sem og glærur sem fylgdu erindum fyrirlesara eru allar aðgengilegar hér á vefsíðunni undir hlekknum Um LÍÚ/Aðalfundir. Þetta efni má einnig nálgast hér.

1. Nóvember 2010

„Árangri og orðspori okkar má ekki kasta fyrir róða með upptöku og uppboði aflaheimilda"

„Íslenskur sjávarútvegur er vel skipulagður, hátæknivæddur þekkingariðnaður þar sem fjölmargir aðilar leggja hönd á plóg, bæði beint og óbeint. Við eigum í harðri samkeppni á alþjóðavettvangi um sölu sjávarafurða og alla daga eru þúsundir manna og kvenna að vinna frábært starf í íslenskum sjávarútvegi og tengdum greinum," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, m.a. í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. 

8. Júní 2010

Skuldir sjávarútvegsins 2,4% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja

Skuldir íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja voru 543 milljarðar króna í lok ársins 2008. Heildarskuldir íslenskra fyrirtækja námu á sama tíma samtals 22.675 milljörðum króna að því er kemur fram í Tíund, riti ríkisskattstjóra. Samkvæmt þessu voru skuldir sjávarútvegsfyrirtækja því 2,4% af heildarskuldum íslenskra fyrirtækja í árslok 2008.

30. Mars 2010

„Grundvallarbreyting á fiskveiðistjórnun og upphaf fyrningarleiðar"

„Þetta frumvarp snýst fyrst og síðast um grundvallarbreytingu á fiskveiðistjórnun og það markar upphaf fyrningarleiðar sem við höfum barist svo eindregið gegn," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ. Hann birti fyrir nokkrum dögum grein undir heitinu Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi, þar sem hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir framgöngu þeirra í skötuselsmálinu og skorar jafnframt á þau að fella úr gildi umrætt ákvæði nýsamþykkts frumvarps sjávarútvegsráðherra.

4. Febrúar 2010

„Þarf að útkljá deilurnar um kvótakerfið"

„Það er alveg ljóst að verði þessi leið farin munu þessi fyrirtæki líða undir lok í þeirri mynd sem þau eru í dag," segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf.  í Grindavík og varaformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna.  „Með því að bjóða upp kvótann þá mun fyrirtæki eins og þetta, sem byggir á samfellu frá veiðum að markaði, ekki lengur getað lofað kaupendum að þeir fái sinn fisk," bætir hann við.

18. Desember 2009

„Fyrningarógninni verður að eyða"

„Það verður að eyða þeirri ógn sem vofir yfir sjávarútveginum með stefnu um fyrningu aflaheimilda. Ég lít svo á - og er þar sammála  kollegum mínum í greininni - að fyrningin hefjist með frumvarpi því sem sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram á Alþingi," skrifar Eiríkur Tómason, forstjóri Þorbjarnar hf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 4. desember sl.  

Fréttir á RSS-formi
Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta