Uppskriftir að hvalkjöti

Nokkrar uppskriftir
Uppskriftir að réttum úr hvalkjöti er víða að finna. Hér eru fjórar uppskriftir af heimasíðu Félags hrefnuveiðimanna, hrefna.is
Gott hrefnukjöt minnir oft á nautakjöt. Það má helst ekki
Mikilvægt er að skera kjötið rétt niður í sneiðar. Passa verður að skera þvert á vöðvaþræðina en ekki langsum eftir þeim. Stundum getur verið erfitt að átta sig á því hvernig vöðva þræðirnir liggja í kjötinu og þarf að skoða bitann vel. Ranglega niðurskornar sneiðar verða seigar við eldun.
Vel heppnað hrefnukjöt er úrvals matur sem er án fitu og beina og má nota í flestar nautakjöts uppskriftir.
Uppskrift nr 1 - Hrefnuspjót
Skerið kjötið í gúllasbita (ekki of stóra). Setjið í skál og hellið Cajp's grillolíu (þessi í áttstrendu flöskunum) yfir og látið marinerast yfir nótt eða frá morgni til kvölds.
Leggið grillpinna í bleyti í ca 2 klst. Rúllið upp baconlengjum. Skerið papriku, rauðlauk eða sveppi í fremur grófa bita. Þessu er síðan þrætt upp á grillpinnana til skiptis. Kjöt + paprika + bacon + kjöt + rauðlaukur + kjöt o.s.frv. Þetta er svo grillað á útigrilli.
Passið að grilla ekki of lengi því þannig þornar kjötið. Borið fram með kartöflum, grilluðum eða soðnum eftir smekk, grænum baunum, hrásalati eða annað sem fólk þykir gott. Piparsósa úr pakka er góð með.
Uppskrift nr 2 - Hrefnusteik
Skerið kjötið í 1 - 1.5 cm þykkar sneiðar. Penslið með BBQ sósu og grillið í ca 3-4 mín á hvorri hlið (á vel heitu grilli).
Borið fram með léttsoðnu fersku grænmeti, kartöflum og grænpiparsósu.
Uppskrift nr 3 - Pönnusteik
Skerið kjötið í 1 cm þykkar sneiðar. Veltið sneiðunum upp úr pískuðu eggi og uxahalasúpudufti (fæst frá
Uppskrift nr 4 - Hrefnuforréttur
Fljótlegur skyndibiti sem er ótrúlega góður. Mikið notað í
Skerið hrefnukjötið niður í örþunnar og litlar sneiðar. Dæmi: 5x5 cm sneiðar sem eru 3-5 millimetrar á þykkt.
Veltið sneiðunum upp úr sojasósu og borðið hrátt.
Næsta uppskrift er ættuð frá Færeyjum, en fengin af vefnum matseld
.is Hún er auðvitað miðuð við grindhval en þar sem að við erum helst að veiða hrefnu, þá notum við hana bara í staðinn. Þetta er mjög góður réttur og hentar sérstaklega vel til að "venja" fólk við sem að ekki hefur borðað hvalkjöt.
Hráefni:
800 gr. hrefnukjöt
150 gr. sveppir
2 dl. sherry ( ágætt að nota eplasafa í staðinn )
4 dl. rjómi
100 gr. smjörlíki
Hveiti
Salt og pipar.
Meðlæti.
Soðnar eða brúnaðar kartöflur. Grænar baunir og rauðkál.
Aðferð: Skerið kjötið í ca 1 cm. sneiðar, veltið því upp úr hveiti og steikið á pönnu í smjörlíki í um 2-3 mín. á hvorri hlið við meðalhita. Takið kjötið af pönnunni og leggið í eldfast mót. Skerið sveppina í bita og steikið í 3-4 mín. upp úr sömu feitinni og kjötið var í. Hellið sherry (eplasafa) út á og látið malla í 1 mín. Hellið síðan rjóma saman við og látið malla þar til að þykknar. Bragðbætið með salti og pipar. Hellið síðan af pönnunni yfir kjötið og látið í ofn við 180 gr. í 15 mín.
Þá er það klárt.












