Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

NAMMCO leggur til veiðar á hnúfubak

Svæðisbundin stjórnun hval- og selveiða á Norður-Atlantshafi framundan?

 NAMMCO, Norður-Atlantshaf sjávarspendýraráðið, ákvað á ársfundi sínum á Grænlandi í byrjun september að leggja til að veiðar Grænlendinga á hnúfubak við Vestur-Grænland fari ekki yfir 10 dýr á árinu 2009. Þessi tillaga er byggð á niðurstöðum NAMMCO frá árinu 2006 þess efnis að slíkar veiðar væru vel innan marka sjálfbærni. Jafnframt var það tekið með í myndina að stofn hnúfubaka við Vestur-Grænland á árinu 2007 væri stærri en árið 2005.  

            Þetta er í fyrsta sinn, sem NAMMCO ráðleggur ákveðinn kvóta. Til þess, hefur ráðið fyrst og fremst metið stöðu hvalastofna í Norður-Atlantshafi og lagt fram þau gögn fyrir vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins, IWC. Nefndin hefur staðfest niðurstöður NAMMCO og um vorið 2008 lýsti vísindanefndin því yfir að veiðar Grænlendinga á 10 hnúfubökum væri vel innan sjálfbærni marka. Engu að síður hafnaði ársfundur ráðsins beiðni Grænlendinga um þessa veiði. 

  Þessi samþykkt gæti verið upphafið að svæðibundinni stjórnun hvalveiða í Norður-Atlantshafi undir forystu NAMMCO, enda lögðu Norðmenn til að á fundinum að NAMMCO tæki að sér veiðistjórnun á þessu svæði. Grænlendingar hafa farið fram á það við dönsk stjórnvöld að Danmörk segi sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu og NAMMCO taki upp veiðistjórnunina. Í fréttatilkynningu NAMMCO eftir fundinn segir að svæðisbundin stjórnun hval- og selveiða sé framundan.

Heimasíða: NAMMCO


Fisheries.is
Sjávarútvegurinn í tölum
Kynningarefni
Hvalamál
Tækniskólinn
Responsible Fisheries

Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta